Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Page 43
Kröfur nútímans
til heiðingjatrúboðs.
Erindi flutt á Synodus 1936.
Háttvirtu áheyrendur!
Það er hlutverk mitt með þessu erindi,
að gera í stuttu máli grein fyrir þeim kröf-
um, sem gerðar eru til kristniboðs meðal
heiðingja nú á dögum. Ég mun þá aðallega
tala um það, sem útheimtist af þeim, sem
starfa úti á kristniboðsakrinum, þó það
hafi líka geysimikla þýðingu, hvernig unn-
ið er að kristniboðsmálefninu heima fyrir,
hvernig kristniboðsáhuganum er haldið við
meðal kristiuna safnaða og hvernig hann
er aukinn og elfdur, ennfremur hvernig
starfið er skipulagt heima fyrir og fé er
safnað til starfsins, sem unnið er meðal
lieiðnu þjóðanna. — Allt þetta hefur mikla
þýðiugu, en yrði í þessu sambandi of langt
mál.
Þær kröfur sem gera verður til kristni-
boðsstarfsins nú á dögum, eru aðallega
þrennskonar. 1) í fyrsta lagi eru kröfur