Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Qupperneq 46
42
má liann vera óþolinmóður né reiðast, því
ekkert fyrirlíta Kínverjar meira, en það,
að menn hafi ekki vald yfir sjálfum sér.
— Yerði mönnum á að reiðast, hafa þeir
• misst andlit sitt«, eins og Kínverjar segja.
— Ekki mega menn heldur fara í mann-
greinarálit, og ekki vera of auðtrúa, því
hinir innbornu menn, hvort sem þeir nú
eru rauðir, brúnir eða gulir, leitast við að
leika á lærða manninn frá Evrópu, alltaf
þegar þeir geta, a. m. k. meðan þeir eru
heiðnir.*
Kristniboðar þurfa helzt að vera fæddir
tungumálamenn. Það er áríðandi fyrir þá
að læra vel málin, þar sem þeir eru, og
bera fulla virðingu fyrir þeim, sérstaklega
vegna þess, að uýlendumenn frá Evrópu
vanrækja einmitt þetta og þröngva sínum
tungumálum upp á þjóðirnar. — Sum mál-
in eru líka mjög erfið, og t. d. í Súdau
er sægur af málum, gagnólíkum, og eru
stundum aðeins 30—40 þúsund manns um
*) Á Madagaskar er það alltaf siður að ■•prútta”, jicgar
menn verzla. Þessvegna setja hinir innfæddu menn jire-
íalt meira verð á hvern lilut, en jieir húast við að fá
fyrir liann. Gleymi Evrópumaðurinn að »prútta« sjá
hinir eftir kaupunum, |)ví þeir halda, að ef þeir hefðu
heimtað meira fyrir hlutinn, myndi binn ríki Evrópu-
maður haia borgað það, hversu hátt sem þaö hefði vcrið.