Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Síða 71
67
reglulega fyrir meðlimi sína, hálfsmánaðar-
lega, og almenna ■samkomu*. Og auk
þess vann það að því, að íslenzkir stúdent-
ar voru sendir á erlent kristilegt stúdenta-
mót. Takmark félagsins er, »að sameina
trúaða stúdenta og menntaskólanemendur,
til þess að styrkja og glæða trúarlíf þeirra,
— og að vinna aðra fyrir Jesúm Krist«.
Það byggir á opinberun Guðs 1 Heilagri
Ritningu og á þann hátt, sein hún hefur
verið skilin af evangelisk-lúteskri kirkju á
öllum öldum samkvæmt játningaritunum.
IV. Ýmislegt.
Erlenda?• heimsóknir kirkjunnar manna
voru ekki margar á líðandi ári né áberandi,
þótt oft hafi að vísu verið færri. — Holger
Mosbech prófessor við Kaupmannahafnar-
háskóla kom hingað í febrúar, til þess að
eiga sæti í dómnefnd um samkeppnispróf
um dósentsembættið í guðfræðideild, og
flytja nokkra háskólafyrirlestra. Almennar
samkomur hélt hann að öðru leyti engar.
— Sigurd Geleff, danskur prestur og
kristniboði, kom hingað til lands 1 byrjun
maí á vegum Austurlandatrúboðsins danska,
til þess að kynna starf þess félags og kristni-
boð. Hann hélt nokkra l’yrirlestra í Rvík