Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Síða 73
Smávegis.
Iíristileg- útgerð.
N. K. U. F., Kristilegt æskalýðssamband Noregs,
hóf útgerð fyrir 10 árum, þ. e. a. s. það hefir haft
skip í förum með ströndum fram á sumrin, og á
vetrum er haldið námsskeið fyrir sjómenn, og geta
þeir loki,ð prófi sem skipstjórar með stróndum fram.
Þetta er sérkennileg en þó eðlileg kristileg starfs-
aðferð, — Auk ferða. með ströndum Noregs hefir og
verið farið til Sviþjóðar, Danmerkur og Þýzkalands.
1 Kína
hefir verið opnuð útvarpsstöð einnig fyrir kristileg
efni. Það eru sendar út hugvekjur á morgnana, frétt-
ir, prédikanir, hljómlist, fyrirlestrar um kristni-
boð og biblíufyrirlestrar.
Verkamennirnlr fáir.
Á kristniboðsráðstefnu 1 Birmingham var nýlega
skýrt frá þvi, að ensk kristniboðsfélög hefðu 400
lausar stöður fyrir kristniboða, lækna og hjúkrun-
arkonur. Á meðan er ekki, um vöxt að ræða, aðeins
að halda, i horfinu.
Vitnisburður Haydns.
Einu sinni var Joseph Haydn, eitt af mikilmenn-
um tónlistarinnar, spurður að því, hversvegna. það
væri ailltaf svo mikill gleðihreimur í andlegum tón-
verkum hans. Hann svaraði: »Ég get ekki annað; ég
sem, eins og hjarta mitt segir mér fyrir. Þegar ég