Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Blaðsíða 75
71
stað þekkingar, meiri trúarlegs innileika í stað laga,
meir ósýnilegs heims, 1 stað hins efnislega«.
Ueiliig ItitniiiK' á nýjuin máluiu,
Biblían öll hefir verið þýdd eða hlutar af henni á
954 af um 5000 málurn, sem nú eru töluð í heim-
inuin. Ensku tímiriti hefir verið skrifað, að naum-
ast verði um þýðingu að ræða, hvað 3000 mál snertir,
annað hvort af þvi, að um sé að ræða þjóðflokka, sein
séu að deyja út, eða þjóðir, sem standi í n&nu sam-
bandi, hvað mál snertir, við aðrar þjóðir, sem hafa
þegar Bibliuna. Þó verður niðurstaðan sú, að enn
eru 1000 mái, sem alls ekkert hefur verið þýtt á.
Fyrir sunnan Rio Grande í Suður-Ameríku búa 17
miljónir Indíánai sem tala, 500 mál og mállýzkur;
i hinum geysi-miklu skóglendum við efri hluta
Amazonfljóts eru hundruð viltra kynflokka. Enn
hefur ekkert veri,ð gert fyrir aila þessa menn til
þess að gefa. þeim Guðs orð’ á eigin tungumúli. Sama
er að segja um meira en 200 Asíuþjóðir. i Afríku
hafa 35 kynflokkar alla. Biblíuna. þýdda, 78 aðeins
Nýja Testamentið og 191 a.ðeins einstaka, hluta þess.
Danskur kristniboði, Erling Kjær, sem l.efir verið
í þjónustu Súda.nkristniboðsins í meira en 20 ár ög
kom nýlega heim í leyfi úr 7. Afríku-ferð sinni, hef-
ir fyrir stuttu sent út þýðingu á Markúsarguðspjalli
á kanakure-mál. Þessi Litla bók er prentuð að til-
hlutun hins mikla enska biblíufélags. Hún verður til
mikillar hjúlpar i starfi kristniboðsins, sem er í
sífelldu og góðu gengi. Aðeins á síðastliðnu ári voru
skírðir 166 á hinum danska kristniboðsakri, og tala
skírðra manna á ölluin kristniboðsakrinum er nú
miLlum 650 og 700. Pótt margar tilra.unir hafi verið
gerðar á liðnum árum til þess að gefa íbúum Afríku
bók bókanna. á sínu feigin rnáli, eru þó meir en 300