Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.05.1962, Qupperneq 25

Muninn - 01.05.1962, Qupperneq 25
AÐ VETRI LOKNUM Þetta er síðasta tölublað 34. árg. Mun- ins, og er starfi mínu við blaðið því lokið. Ég þakka ritnefnd og auglýsinganefnd gott samstarf í vetur, svo og ábyrgðarmanni. Sérstakar þakkir vil ég þó færa Leó Krist- jánssyni, er verið hefur fulltrúi \7I. bekkjar i ritnefndinni í vetur og unnið einkar gott starf. Einnig þakka ég öllum þeim öðrum, er lagt liafa Munin lið í vetur. Án stuðnings þeirra ætti blaðið efalaust mjög erfitt npp- dráttar. Af þessum mönnum er rétt að til- greina einn sérstaklega, Kristján Kristjáns- son í VI, bekk, sem verið hefur blaðinu mjög þarfur. Þá vil ég færa Prentverki Odds Björnsson- ar h.f. beztu þakkir fyrir sérstaka lipurð og greiðasemi í viðskiptum. Blaðið nýtur veru- legra fjárhagslegra fríðinda hjá P. O. B. og stendur því stöðugt í mikilli þakkarskuld við fyrirtækið, og er enda ósennilegt, að hægt væri að gefa blaðið út án þessara fríð- inda. Ég hef athugað lauslega, hverjir ritað hafa í blaðið á vetrinum. Má segja, að það séu 24 nemendur, ef þeir eru taldir, sem ritað hafa að meira eða minna leyti sjálfstæðar greinar. Er nær helmingur þeirra úr VI. bekk, fjórð- ungurinn úr V. bekk og jafn margir úr IV. bekk, en aðeins einn þriðjubekkingur. Mér finnst athyglisverðast í þessu sambandi, hve lítið þriðjubekkingar hafa látið að sér kveða. Er raunar stórfurðulegt, að einungis einn maður af 120 manna liópi skuli bera sig að því að sína ritnefnd andlega framleiðslu sína. Ef vel ætti að vera, ætti heill hópur þriðjubekkinga að vera áfjáður í að skrila, og raunar ætti þá ritnefndin að fá svo mikið efni í hendur frá nemendum yfirleitt, að Iiægt væri að kasta helmingnum úr og hafa blaðið samt 25—30 síður og lesbók að auki! Þetta heitir auðvitað nöldur, En það nöldra fleiri en ritnefndin.Sumir skammast stöðugt yfir því, hve lélegt efni birtist í Munin (eins og þeir orða það). Ég get frætt ykkur á því, hvernig blaðið yrði, ef aðeins væri birt vin- sælasta efnið. Þá yrði ekki í því annað en myndir og skrýtlur. Væri hins vegar aðeins birt það efni, sem menn vilja lielzt skrifa, yrði blaðið mestmegnis skammir og nöldur urn kennsluhætti, kennara og nemendur, og auk þess varla meira en 4—8 síður að stærð! Hér verður að finna einhvern meðal- veg, en hann er auðvitað bæði vandfundinn og vandrataður, eins og aðrir meðalvegir, og því má sífellt um hann deila. Starf mitt við Munin hefur ekki aukið á bjartsýni mína í sambandi við félagsmál hér í skólanum. Allt of margir eru stöðugt alveg óvirkir í félagsstarfseminni, án þess þó að eyða tíma sínum í nokkuð gagnlegt, ann- að en námið (ef þeir þá eyða nokkrum tíma í það). Ég kann ekki við að telja upp, hvað margir þessara manna virðast gera við mikið af tíma sínum, en hollt væri þeim að hug- leiða það, að tími er ef til vill það eina, sem ekki er hægt að vinna upp aftur seinna að neinu leyti, hafi honum verið sóað til einsk- is. Einnig væri ekki úr vegi að benda þess- um sömu heiðursmönnum á það, að tíminn er dýrmætari á fyrri hluta ævinnar en síðari hlutanum; að því má auðveldlega færa gild rök. Afleiðingin af þessu verður sú, að þeir fáu, sem að félagsmálunum vinna, eyða í þau tiltölulega mjög miklum tíma, án þess ef til vill að sjá nokkurn verulegan árangur verka sinna og þeirra fáu annarra, sem með þeim vilja vinna. Ég hef nú þessi orð mín ekki fleiri, en leyfi mér að óska eftirmanni mínum, Rögn- valdi Hannessyni, heilla í starfi, og vona, að undir stjórn hans og annarra eigi Mun- inn eftir að njóta farsældar um ókomin ár. Björn Teitsson. muninn 97

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.