Muninn - 01.11.1966, Side 4
Annalis
Menntaskólinn á Akureyri var settur á Sal
kl. 4, sunnudaginn 2. október. Þau umskipti
hafa orðið á stjórn skólans, að Þórarinn
Björnsson, skólameistari, hefur tekið sér
ársleyfi frá störfum, vegna skyndilegra veik-
inda sl. haust, en við öllum meginstörfum
skólameistara liefur tekið Steindór Stein-
dórsson, áður yfirkennari.
Skólasetningin á Sal var hátíðleg að
vanda. Skólameistari minntist í ræðu sinni
Jónasar Snæbjörnssonar, sem lézt sl. sumar,
en hann var um fjölda ára kennari hér við
skólann. Vék Steindór því næst að málefn-
um skólans og skýrði m. a. frá því, að loforð
væri nú fengið fyrir fjárveitingu til bygg-
ingar kennsluhúsnæðis við skólann. í lok
ræðunnar beindi hann orðum sínum til
nemenda, livatti þá til starfs og sagði síðan
skólann settan.
Þess má geta, til þess að ýta svolítið undir
hégómagirndina, að ljósmyndarar blaða og
sjónvarps settu þó nokkurn svip á athöfn-
ina.
Fljótlega eftir helgina tók skólalífið að
fá á sig gamalkunnan blæ. Asbjörn hengdi
upp sjálfsmynd til auglýsingar starfsemi
F. Á. L. M. A., og fleiri formenn fylgdu í
kjölfarið með áskriftarlista frá sínum félög-
um. Lá við, að kennsla tefðist í fyrstu af
þessum sökum, því að menn höfðu naum-
ast undan í kennslustundum að innrita sig
í hin ýrnsu félög.
Lokaður heimavistarfundur var haldinn
í setustofunni, þar sem rifjaðar voru upp
reglur og venjur. I vetur annast kennararn-
ir Árni Kristjánsson og Aðalsteinn Sigurðs-
son gæzlu Nýju-vista í fjarveru Þórarins
Björnssonar, en Egill Egilsson hefur unr-
sjón með heimavistinni á Varðborg.
Mötuneytið hefur verið mikið vandamál
í liaust eins og stundum áður. Ffafa bið-
raðir slegið öll sín fyrri met, hvað lengd
snertir, hefur t. d. kornið fyrir, að karla-
vistarröðin hafi verið meðfram öllum veggj-
um setustofuanddyrisins og jafnvel náð
framhjá aðaldyrunum og upp í stiga. Skap-
aði þetta um tíma hina þróuðustu biðraða-
menningu, sem okkur íslendinga hefur
löngum þótt skorta. En nú hefur skipulag-
inu verið breytt með mörgum reglugerðum
og tilskipunum til hins mesta hagræðis fyrir
alla, sem þurfa að flýta sér að borð’a.
Þann 6. okt. var norræna dagsins minnzt
á Sal. Spjallaði skólameistari vítt og breitt
um norræna samvinnu, og nemendur sungu
þjóðsöngva Norðurlandanna að Færeyjum
ekki gleymdum. Hermann Stefánsson, söng-
kennari, lék undir á flygilinn.
Fyrsta laugardagskvöld skólaársins stóðu
5. bekkingar fyrir skemmtun á Sal. Hófst
hún með lrinni árlegu kynningarvist undir
ágætri stjórn RagnarsSteinbergssonar, kenn-
ara. Urðu Siglfirðingar þar hlutskarpastir
og hrepptu flest verðlaunin, enda þótt sum
þeirra væru nú betur komin í eldhúsið. Á
eltir var dansað við undirleik Engra, sem
léku nú í síðasta sinni, enda virtist liggja
vel á öllum.
íþróttavöllur skólans hafði fram að þess-
ari helgi verið ónothæfur vegna snjóa frá
helginni áður, en á laugardag hafði I. M. A.
lokið við að hreinsa hann, enda byrjaði að
hlána eftir helgina, svo að 6. bekkingar
4 MUNINN