Muninn

Árgangur

Muninn - 01.11.1966, Síða 8

Muninn - 01.11.1966, Síða 8
eí'tir föngum, en síðan var stormað niður á hótel staðarins og etinn kvöldverður iirna- góður. Þar hló Jakob sóló. Eftir matinn safnaðist fólkið á ný saman í barnaskólan- um, karlmenn til að bera á skó sína en kven- fólk kyssitau sitt, því að nú skyldi stiginn dans í sláturhúsinu. Tónlist framleiddu téð ur yfirbítill og Egill Eðvarðsson. Nokkrir kokspyrnumenn létu til sín heyra þetta kvöld, m. a. söng Egill Egilsson fáein lög, eftir að Steingrímur hafði af sinni alkunnu Ijúfmennsku logið því að honum, að það væri tradisjón, að kennarar fremdn afglöp nokkur í ferðum VI. bekkjar, og væri söng- ur í almenningsáheyrn eitt af þeim. Var Agli að vonum fagnað gífurlega. Eftir dansi- ball þetta skriðu menn í poka sína, utan þeir fjórir, er hurfu úr sjónmáli. Þegar kyrrt var orðið, sagði Egill draugasögu, og setti hroll mikinn að mönnum. Einnig var sögð harmsaga um mann nokkurn, sem fitlaði með skrúfjárn við nafla sinn með þeim af- leiðingum, að hinn óæðri endi sagði skilið við líkamann. Elrðu menn felmtri slegnir, og Elilmar svaf lítið um nóttina. Var það almennt álit, að ein af hans lausu skrúfum væri einmitt sú umrædda. Næsta morgun var risið árla úr rekkju og haldið til Ásbyrgis. Var þar hafin leit að iind nokkurri, sem þar á að fyrirfinnast. E'annst loks pollur einn, lítili og vesældar- legur. Var þar tekið lagið, en bergmálið lét á sér standa. Jakob stökk upp á stein og flutti bílddælska prédikun, en Jón Eldon hafði næstum gert gullfætur sína óvirka með príli sínu í klungrum byrgisins. Hall- dór Guðbj. og Guðmundur markvörður Nelson hermdu eftir sírenum lögreglubíla af svo mikilli sannfæringu, að þeir, sem ein- hverja sök vissu hjá sér, stungu henni á sig hið bráðasta. Enn á ný var klifrað upp í bílana, og átti nú að hrella Húsvíkinga. Voru uppi getgát- ur og jafnvel veðmál um komutíma til Húsavíkur. Á áfangastað kom í ljós, að Þór- hallur Arason hafði getið rétt, svo að ekki skipti nema sekúndum. Varð þá Hilmari 8 MUNINN

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.