Muninn

Volume

Muninn - 01.12.1990, Page 22

Muninn - 01.12.1990, Page 22
Bragi Guðmundsson: BRIN GUHÁRAKÖNNUNIN Á síðasta vormlsserl var nemendum í fyrsta bekk boðið upp á valáfanga í félagsfraeði og kom það í hlut imdirritaðs að leiða hópinn. Átján nemendur mættu til leiks og hefur góður meirihluti þeirra nú hreiðrað um sig í 2.F. Fljótlega var ákveðið að gera skoðanakönnun innan skólans um hvaðeina, sem fólki datt í hug, og að fengnu leyfl skólayfirvalda var gengið í bekki þann 27. mars. Við úrvinnslu var svörum haldlð aðgreindum eftir bekkjum, en einnig lagðar saman tölur til þess að fá heildarútkomu. Slfyrsla var síðan gerð í tæplega 30 eintökum og hafa fæstir átt þess kost að sjá niðurstöðumar. í þessu greinarkomi verða kynnt nokkur atriði sem ætla má að veki áhuga og jafnvel kátínu. Alls tóku 445 nemendur þátt í könnuninni, þar af vom stúlkur 260 eða 58,4%. Var hlutfall kynjanna meðal svarenda í góðu samræmi við hlutfaU kynjanna í skólanum. Stjömumerki í ljós koma að flestir nemenda em fæddir í krabbamerkinu eða 12,8%. Næstflestir vom vatnsberar og naut, 9,7% í hvom merki. Fæstir vom í meyjarmerkinu eða 5%. Og af einhveijum ástæðum er það svo að tiltölulega fáir nemendur em fæddir frá og með því merki til og með steingeitarmerkinu, eða tæplega 32%. Á þessu bili em þó flmm af tólf merkjum dýrahringsins og ef nemendur dreifðust jafnt yflr línuna, þá ættu tæplega 42% þeirra að vera fæddir á þessum tíma ársins. Hvert hlutfall allra landsmanna er eftir stjömumerkjum veit ég hins vegar ekki, og því er ekkert hægt að segja til um hvort þetta hlutfall meðal nemenda Menntaskólans er vemlega frábmgðið því sem gengur og gerist meðal íslendinga. Vlnnurðu launaða vinnu með skólanum á þessari önn? Þessari spumingu svömðu 26,3% stúlknanna játandi og 18,5% piltanna. Hlutfallslega fæstir unnu með skólanum í fyrsta bekk, 16,2%, en flestir í 4. bekk, 31,7%. Þrir af hveijum fimm vinna tíu tíma eða færri að meðaltali í viku hverri og einn af hveijum fjórum 11-15 tíma. Stúlkumar vinna að jafnaði lengur en strákar. Hvað vlltu verða? Spurt var um hvaða starfi viðkomandi vildi helst gegna í framtíðinni. Rúmur helmingur var óákveðinn eða svaraði ekki og var lítill munur eftir bekkjum. Stúdentsefnin vom ekkert ákveðnari um ffamtiðina en þeir sem skemmra vom á veg komnir. Af þeim, sem tilgreindu eitthvert starf, nefndu flestir læknisstarfið (10 stelpur og 11 strákar), flmmtán ætla að verða kennarar (9+6) og fjórtán vilja starfa við ferðamál (13+1). Önnur störf nutu mun mtnni vlnsælda. - Annað hvort emm við kennaramir nemendum okkar góð fyrirmynd, ellegar þeir telja þörf fyrir mikla endumýjun í stéttinni! Afþreying og mennlng utan skólans Tveir af hveijum þremur nemendum fara einu sinni til tvisvar í mánuði á skemmtistaði, ámóta stór hópur merkti við hvom möguleika um sig. Tæp 17% kváðust fara f)ómm sinnum eða oftar, 3,8% aldrei. Lítill munur var á kynjunum. Bleiki fíllinn naut langmestra vlnsælda, Uppinn var í öðm sæti, Sjallinn því þriðja og einn strákur kannaðist við að fara á KEA. - Þar er greinilega helst hægt að skemmta sér í friði fyrir nemendum. 22 MUNINN

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.