Heimilisblaðið - 01.01.1942, Síða 2
2
H E I M I L I S B L A Ð I Ð
Edwin Markham
Hvernig' er fólkið?
Um sumardag heitan með svefnhöfga brá
í svalskuggum pálmanna spámaður lá.
Hann friðsælan himinn í hvíldinni fann. —
Um hádegi bar þar að langferðamann.
Hann settist þar, si>urði, á spámanninn leit;
með spjátrungsins glolti á vörina beit:
»Já, reisuleg hfbýli, heilmikil torg!
En hvernig er fólkið í þessari borg?*
/Því ljúft er að svara«, kvað hlýlega hinn;
>;en hvers konar fólk er hann nágranni þinn?«
»Hann nágranni minn? — Ekki nokkurs manns bón
hann nauðstöddum veitir — er skálkur og flón«.
»Já, ákveðin lýsing; hún eykur mér sorg:
þér eins reynist fólkið í þessari borg«.
En seinna um daginn bar annan þar að,
hann áði og hvíldist í forsælustað.
Hann spaklegum augum á spámanninn leit
og spurði í auðsærri þekkingarleit.
»Já, reisuleg híbýli, heilmikil torg!
En hvernig er fólkið í þessari borg?«
»Því ljúft er að svara«, kvað hlýlega hinn,
»en hvers konar fólk er hann nágranni þinn?«
»Hver einasta sál, er í sveit minni býr,
í sannleika virðist mér göfug og skír«.
»Já, ákveðin lýsing, hún eyðir mér sorg:
þér eins reynist fólkið í þessari borg«.
Þó eydd sé nú borgin og ártafið gleymt,
er efnið í sögunni vandlega geymt.
»Lögberg«. Sig. Júl. Jóhannesson þýddi.