Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1942, Qupperneq 15

Heimilisblaðið - 01.01.1942, Qupperneq 15
HEIMILISBLAÐIÐ 13 helgum myndum, sem hann hafði haft með sér norður, og mynd af Elínu með blóðugt enni. Hugðu rnenn, að hann heföi málað þá mynd sjálfur. En brátt var orðið all mannmargt þar hjá einsetumanninum og fór nú að ber- ast að honum fé. Kristnum mönnum, sem af honum fréttu, fannst sem eitthvað dul- arfullt byggi hér að baki. Mönnum var þetta svo óskiljanlegt, að ókunnur maö- ur var að byggja Drottni musteri þarna norður á hjara veraldar, í óþekktu byggð- arlagi, þar sem menn héldu að væri koi- dimm nótt annan helming ársins, en bjaft- ur dagur hinn helminginn. Pílagrímarnir sem heimsóttu Sóló- wetski-klaustrið, og ákafastir voru, héldu sumir áfram alla leið til bænhússins við Munkafjörð og fórnuðu þar helgigjöfum sínum 4 altari kirkjunnar og báðust fyr- ir. Og það var venja þessara pílagríma, að tína þarna nokkur villiblóm, áður en þeir færi þaðan og hafa til endurminn- ingar um pílagrímsförina. Geymdu þeir síðan þessi blóm sem helga dóma. Menn úr nærsveitunum komu einnig í heimsóknir til Trífons til þess að skoða bænhúsið, og fór hann þá að gefa sig meira að Löppunum, sem voru menn heiðnir, og fræða þá um kristindóminn. En þeir voru tregir á að sinna prédikun- um hans og einkum gerðust Nóídar eða töframenn þeirra mjög andvígir Trífoni.. Réðust þeir að honum og hótuðu honum lífláti, ef hann hefði sig ekki á brott úr landi þeirra. Og í þjóðsögunum segir, að beir hafi oft ætlað að framkvæma þessar hótanir, »en Drottinn hélt hendi sinni yfir honum«. Og þegar hann heimsótti Þá, var hart á því, að þeir vildu hýsa hann. Þeir blönduðu mat hans óþverra og gerðu honum sitt hvað til angurs. En hann var umburðarlyndur svo að fádæmum sætii °g þolinmóður við þá, eins og sannkristn- um mönnum sæmdi. »Hann umbar allt, treysti öllum, vonaði allt og þoldi allt«. Og að því kom, að þeir gátu ekki annad i en heiðrað hann og dáð, elskað hann og virt. Og þá fóru þeir líka að gefa gaum að prédikun hans. En vegna þess, að hann var hvorki munkur eða prestvígður, gat hann ekki skírt þá. Enn bar þarna gesti að garði, en það voru rússneskir fiskimenn, sem héldu til á þessum slóðum á sumrin, og leituðu til bænhússins og tóku þátt í guðsþjónust- um. Þeir tóku það upp hjá sjálfum sér að gjalda tíund eða offur, og á þann hátt barst Trífon talsvert fé. Sá hann nú, að hér mátti ekki við svo búið standa. Honum var nauðugur sá einn kostur, að leita aftur samvinnu við aðra menn, því að hann þurfti að fá sér að- stoðarmenn. Tók hann sér nú ferð á hendur til Nov- gorod, um árið 1530 og fékk leyfi Makaií erkibiskups til þess að reisa kirkju við Petsjengaá. Og þegar hann fór heimleiðis aftur, voru í för með honum bygginga- meistari og smiðir og reistu þeir með hon- um fagra kirkju við Petsjenga, nokkru nær firðinum en bænhúsið og skammt frá árósunum. Ekki var kirkja þessi vígð strax, og liðu svo tvö ár. En árið 1532 fór Trífon til Kólahéraðs, þar sem síðar reis upp borgin Kóla, eða árið 1582. Árið 1529, — sumir -ætla að það hafi verið 1475, — hafði munlc- ur einn frá Sólówetski, Feódórit að nafni, reist þar klaustur og kirkju, við mynni Kólafljóts, og þar hitti Trífon prest einn, Ilija að nafni. Þennan prest fékk hann til að koma með sér til Munkafjarðar og vígja kirkjuna. En kirkjunni var gefið nafn heilagrar þrenningar. Og ekki var þetta allt, því að presturinn færði kirkju- smiðinn í munkakufl, skírði hann Trífon og veitti honum prestsvígslu. Það er þess vegna líklegt, að hann hafi heitið öðru nafni, á meðan hann stundaði rán og manndráp, en það hermir ekki sagan. En prestur þessi skírði nú ennfremur alla þá Lappa, sem Trífon hafði kennt krist- in fræði.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.