Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1952, Blaðsíða 30

Heimilisblaðið - 01.05.1952, Blaðsíða 30
102 Vertu ekki að gráta mín vegna, ég skal reyna að kvarta ekki oftar. — Manstu eftir því, Albert, sagði hún og brosti í gegnum tárin, hvernig Drottinn bar þunga krossinn sinn okkar vegna og hvernig hann einn- ig hné niður undir þunga byrðarinnar. Þá bar þar að mann, sem hét Símon frá Cýrene, og tóku þeir þá kross- inn og létu manninn bera hann fyrir Jesú. Gömul sögn segir, að þessi maður hafi seinna orðið trúr lærisveinn frelsar- ans, sem hann áður hafði bor- ið krossinn fyrir. Ég man, að við töluðum um þetta einu sinni, endur fyrir löngu og ég minnist þess enn, að þú óskaðir þess að þú hefðir ver- ið í sporum mannsins og feng- ið að bera krossinn fyrir Jesú. Jæja þá, drengurinn minn, ógæfa sú, sem Jesús hefur lagt þér á herðar, er einmitt krossinn, sem þú átt að bera með þolinmæði fyrir hann. Albert leit upp og augu hans ljómuðu af gleði og þakklátssemi. — Mig langar, mamma — sannarlega vil ég reyna að vera hugrakkur og bera þenna kross. Hann skal ekki iðrast þess að hafa lagt hann á mig. — Já, drengurinn minn. Ef að þú hugrakkur tekur á þig krossinn, sem frelsari þinn hefur fengið þér að bera, mun hann einhverntíma verða þér til blessunar og hjálpar í stað- inn fyrir það, að hann er þér nú til sorgar og mæðu. Frú Willén gekk út í bili, en Albert lá eftir inni með sæla gleði og frið í hjarta. Nýjar hugsanir höfðu vaknað í huga hans — nýjar, fagrar framtíðarvonir. Hann hafði freistazt til að álíta sig standa öllum öðrum drengjum að baki, vegna þess að hann var farlama, og hann gat aldrei gleymt hinum miskunnarlausu háðsyrðum Tómasar, þegar hanp hrinti honum niður í skurðinn, og ekki heldur með- aumkunarorðum skógarvarð- arins, er hann bar hann heim, vesalings ósjálfbjarga og ör- kumla aumingja, sem ávallt yrði háður meðaumkun góðra, og fyrirlitningu vondra með- bræðra sinna! En nú sá hann þetta í allt öðru Ijósi. Nú var það heiður hans, vesalings litla drengsins, að frelsari hans áleit hann þess verðan að taka á sig og þola svo þunga raun. Hann skyldi aldrei framar gráta yfir ógæfu sinni, aldrei hryggja móður sína með umkvörtunum. Hann ætlaði að bera krossinn, sem Jesús hafði lagt honum á herðar, með hugprýði. Nú kom móðir hans inn aftur. — Heyrðu, Albert, sagði hún, hann Tómas Bom er hérna og spyr, hvort hann megi koma inn og heilsa upp á þig. — Ó, mamma! gall Albert við og stokkroðnaði. Ég held að það sé bezt, að hann komi ekki eins og nú stendur, sagði hann svo hálf hikandi. Vertu svo væn að segja honum að ég geti ekki talað við hann í dag. Frú Willén lét aftur dyrn- ar og settist hjá Albert. — Ég held að Tómas sé kominn til HEIMILISBLAÐIP að biðja þig fyrirgefningar> Albert, sagði hún alvarlega- Hann virðist vera mjög sorg' bitinn. — Hvernig veiztu að þa^ var hann, mamma, ég hef ekki minnzt á það við neinn, ekki einu sinni við Þ1®’ mamma? sagði Albert for' viða. — Nei, það er satt, en ég hef nú komizt að því samt- Og ég fór rakleitt til Tóm' asar, einn daginn, og talaði alvarlega við hann, og nú e1 hann ákaflega sorgbitinn yfir því sem hann gerði. Cf — En hann pabbi hans • Hefur hann fengið að vita um það? Hefur Tómasi verið refs' að fyrir það? Heldur hann að ég hafi sagt eftir honum? — Nei, pabbi hans veit ekkert um þetta. Ég bjóst við, að þér væri ekki um að e& segði honum það. En ég sagði Tómasi hins vegar, að Þel væri umhugað um, að engm11 fengi að vita hver það va1 > sem hrinti þér niður í skurð' inn. Hann var undrandi yÞ1 því, og ég held næstum Þvl að hann hafi viknað nokkuð við að heyra það. Ef þú verð' ur nú vingjarnlegur við hanm Albert, getur þú ef til vil| stutt að því að hann verð1 betri drengur eftir en áður- — Ég skal reyna Þa^’ mamma, sagði Albert. Frú Willén gekk Þa út rétt á eftir var drepið létt a dyrnar og Albert svaraði: Kom inn! Kom Tómas Þa 1 ljós í dyrunum, fölur °% feimnislegur og hélt á húfu sinni á milli handanna. Framh.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.