Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 11

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Síða 11
W. Somerset Maugham SVO HAMINGJUSÖTVl - í raún og veru hafði ég eng- an sérstakan áhuga fyrir Landon. Hann var meðlimur í sama klúbbi og ég, og þar höfðum við oft snætt hádegis- verð saman. Hann var dóm- ari við The Old Bailey, og það á ég honum að þakka, að ég fékk alltaf gott sæti í réttin- um, þegar þar var á ferðinni eitthvert mál, sem ég hafði áhuga á. Hann var duglegur, réttlátur dómari en nokkuð harður í dómum sínum, og bað snart mig stundum illa, þegar hann ræddi með sinni beiskyrtu fyndni um eitthvert mál, sem hann hafði haft til meðferðar. Ég vissi, að honum féll vel í geð að ræða við mig, en ég hafði aldrei ímyndað mér, að hann liti öðru vísi á mig en hvern annan kunningja úr klúbbnum. Þess vegna varð ég mjög undrandi, þegar ég fékk símskeyti frá honum, þar sem hann' tilkynnti mér, að hann ætlaði að dvelja á Riv- ieraströndinni í leyfi sínu, og hann langaði til að dvelja tvo til þrjá daga hjá mér á leið sinni til Italíu. Ég sendi sam- stundis skeyti til baka, að koma hans myndi verða mér sérstakt ánægjuefni. Daginn, sem hann kom, bauð eg vinkonu minni, ungfrú Grav, til miðdegisverðar. Hún var komin af æskuskeiði, en var bó ennþá mjög töfrandi. Ég lét búa til framúrskarandi góðan miðdegisverð. Þó að ég ætti ekkert portvín handa dómaranum, þá gat ég boðið heimilisblaðið honum úr flösku af ágætu Montrachet og úr annarri af ennþá betra Mouton Rotschild. Mér til sérstakrar ánægju naut hann þeirra beggja, en þegar ég bauð honum cockt- ail, hafnaði hann honum nærri því gramur. — Ég hef aldrei getað skil- ið, sagði hann, hvernig fólk, sem að öðru leyti virðist nokkurn veginn siðmenntað, getur haft þennan ósið, sem ber ekki aðeins vott um ómenningu, heldur er blátt áf"am viðbjóðslegur. Mér er þó óhætt að full- yrða, að orð hans fengu hvorki ungfrú Gray né mig til að neita okkur um dálítið af Martini. Miðdegisverðurinn heppnað- ist ágætlega. Hið ljúffenga vín og skemmtilega skraf ungfrú Grays verkuðu þannig á Land- on, að ég hafði aldrei séð hann jafn kátan og fjörugan. Hann virtist una sér vel í ná- vist kvenmanns. Aðskorni kjóllinn, sem fór henni sér- staklega vel, mjög smekkleg hárgreiðsla, þó að eitt og eitt hár væri orðið grátt, og smá- frítt andlitið hjálpuðust að við að gera ungfrú Grav töfrandi fagra. Að lokinni máltíð dofn- aði aðeins yfir dómaranum, sem drukkið hafði eitt koní- aksglas til viðbótar, en hann skemmti okkur prýðilega í tvo tíma við að segja frá frægum málaferlum, sem hann hafði haft til meðferðar. Það kom mér ekkert á óvart, hvað Landon var fljót- [7] ------------------------------- W. Somerset Maugham er víöfrœgur ensk ■ur rithöjundur. Hann hefur sk.rif- a8 feiknin öll af smásögum, skáld- ritum, ferSusög- um, leikrilum og ritgerSum og er dáöur um ullan heim. Margir gagnrýnendur álíta hann standa í fremstu röS brezkra nútíma höjunda. Kímni hans og kald- hœðni er viSbrugSiS. Margar skáldsögur hans hafa verið þýddar á íslenzku, m. a. frœgasta bók hans „Fjötrar“, er hlotið hefur miklar vinsældir víða um heim. Nokkur leikrit hans hafa einnig verið leikin hér á landi. k.______________________________J ur að þiggja boðið, þegar ung- frú Gray bauð okkur til há- degisverðar daginn eftir. — Dásamleg kona, sagði hann, þegar hún var farin. Hvílíkt andlit, Drottinn minn! Hún hlýtur að hafa verið mjög lagleg, þegar hún var ung. Hvers vegna hefur hún aldrei gifzt? — Hún segir alltaf sjálf, að það sé vegna þess að enginn hafi beðið sín. — Þvættingur. Konur eiga skilyrðislaust að giftast. Það eru allt of margar konur, sem þruma um kvenfrelsi. Mér geðjast ekki að þeim. f Tngfrú Gray bjó við St. Jean í lítilli villu, sem sneri út að sjónum. Það var um tvo kílómetra frá húsi mínu við Cap Ferrat. Klukkan eitt dag- inn eftir ókum við heim til hennar, og var okkur sam- stundis boðið inn í dagstofuna. — Þú munt verða undrandi að heyra það, sem ég hef að segja þér, sagði hún við mig um leið og við komum inn. Craigshjónin koma.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.