Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Qupperneq 13

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Qupperneq 13
ir mörgum árum, ef til vill tuttugu árum. Þá hafði Angelina verið gædd yndis- þokka hinnar ungu konu og Edwin verið ungur maður, sem trúði á lífið og hamingj- una. En þau voru bæði blá- fátæk og gátu þess vegna ekki gift sig. Samt litu þau björt- um augum á framtíðina, von- góð og hugrökk. Edwin ákvað að fara til Suður-Ameríku og vinna sig þar áfram, koma síðan heim aftur, þegar hann ■væri orðinn ríkur og giftast þá unnustu sinni, sem beið hans þolinmóð. Það mundi aldrei taka hann nema svona tvö ár, hámarkið fimm. — Hvað er það, þegar maður er tvítugur og hefur allt lífið framundan? Að sjálfsögðu mundi Angelina búa hjá móð- ur sinni á meðan. t'n margt fer öðru vísi en æt'að er. Þrátt fyrir að Edwin vann baki brotnu, var hann ekkert ríkari eftir fimm ar, heldur en þegar hann byrj- aði, og það var aðeins ást hans á Angelinu og hin ást- uðlegu bréf hennar, sem veittu honum styrk til að halda bar- attunni áfram. Hana langaði r> ð koma til hans og taka hátt í hinum erfiðu kjörum hans, en hún gat ekki yfir- gefið móður sína, sem átti við rnikla vanheilsu að stríða. Það var bví ekki annað að gera fvrir bau en að vera þolin- móð. Þannig liðu mörg ár, Edwin var orðinn gráhærður, °g Angelina var orðin ljót og þrevtuleg. Henni var það rnikið erfiðara, því að hún hafði ekki annað að gera en bíða. og einn góðan veðurdag uoprrötvaði hún, að æska hennar með hinu glaðværa hrosi ov marp-víslegu tilhneig- ingum var með öllu horfin. HEIMILISBLAÐIÐ Hún var farin að spyrja sjálfa sig, jivort hann væri ekki hættur að elska hana og hvort hann kæmi nokkurn- tíma heim aftur. Hún var oft örvæntingarfull. Tíminn leið — fimm — tíu — tuttugu ár. Þá skrifaði Edwin, að allt væri í lagi, og hann ætti næga pen- inga, til þess að þau gætu lif- að áhyggjulausu lífi, það sem þau ættu eftir ólifað. Ef hún vildi ennþá giftast honum, þá mundi hann koma undir eins heim. Þegar þau mættust eft- ir að hafa verið svona lengi fjarvistum, sá Angelina sér til skelfingar, að Edwin var eins unglegur og hann hafði nokkru sinni verið. Að vísu var hann orðinn gráhærður, en það fór honum aðeins betur. Aftur á móti fannst henni, að hún sjálf væri eins gömul og Metúsalem, og hún bauðst til að hætta við ráðahaginn. Hann varð náfölur. — Elskarðu mig ekki leng- ur? hrópaði hann alveg nið- urbrotinn. Þá rann skyndilega upp liós fyrir henni — ó, hvílík sæla: —- Hún var hin sama í hans augum og hún hafði aUtaf verið. S’ðan giftust hau. — Ég trúi ekki einu einasta orði af hessu. sacrði ég, þegar unrrfrú Gray hafði ánægð lok- ið sögu sinni. — Eg er alveg sannfærð um að þetta er dagsatt. sagði hún, og ég efast ekki um, að hau verða svona hamingjusöm fram á elliár. Á meðan ég sagði þeim bessa skemmtilegu sögu, sem var algerlega rUnnin frá hinu auðuga ímvndunarafli ungfrú Grays, biðum við eftir Craigs- hjónunum. — Hafið bér nokkurntíma [9] veitt því athygli, að þeir sem búa mjög nálægt koma nærri undantekningarlaust of seint? spurði ungfrú Gray dómarann. — Nei, það hef ég ekki gert, anzaði dómarinn fýlu- lega. Ég hef ætíð verið stund- vís sjálfur, og ég ætlast til þess sama af öðrum. — Ég geri ráð fyrir, að það sé tilgangslaust að bjóða ykk- ur cocktail? — Nei þökk, alls ekki cock- tail. — En ég á lögg af sherrý, sem mér hefur verið sagt að bragðist ágætlega. Dómarinn tók flöskuna úr hendi hennar og horfði á vörumerkið. Bros lék um þunnar varir hans. — Þetta er vín, sem hæfir menntuðu fólki. Með yðar leyfi, má ég veita vínið sjálf- ur? Ég hef ekki ennþá fyrir- fundið þá konu, sem hefur kunnað að skenkja vín í staup. Maður á að halda um mittið á konu, en um hálsinn á flösku. Á meðan hann sat og dreypti á sherrýinu, starði ungfrú Gray út um gluggann. — Jæja, þarna kemur skýr- ingin á því, hvers vegna þau koma svona seint. Þau eru að bíða eftir því, að barnið komi heim! Ég leit út og sá, að barn- fóstran var að fara með vagn- inn meðfram húsi ungfrú Grays. Craig lyfti barninu upp úr vagninum. Sá litli reyndi að toga í yfirvararskeggið á honum og bablaði látlaust. Frú Craig, sem stóð við hlið- ina á honum, fylgdist með bessu af miklum áhuga og brosti, svo að andlit hennar, sem annars var ólaglegt, varð geðþekkt. Glugginn var opinn, svo að við heyrðum, hvað hún sagði:

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.