Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Page 19

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Page 19
Svo byrjar barningurinn, þrotlaust hamr gegn trylltum ofsanum. Við gleymum öllu — öllu nema árunum og blöðrusteyptum lófunum. Það er ekki svo auðvelt að gleyma sprungnum greipum, þegar selta og marglitta kraumar í kvikunni. Þá er maður kval- inn áfram af pikkjum og stingjum, og maður rær og rær eins og svipubarinn gal- eiðuþræll. Þannig börðum við allan guðslangan daginn, þöglir og trénaðir. Þá fór ofurlítið að slota, enda komnir í landvar. Trölllerkaðir dömluðum við inn á lygna vík, undir hoflög- uðum hnjúki, létum krökuna fara og réttum úr kryppunni. Það var komið kvöld, stirndur himinn, brag norður- Ijósa, kringluleitur máni vað- andi í skýjum. — Þetta verður ekki löng hvíld, strákar, köstum bara mæðinni og áfram svo, sagði karlinn. Hann fékk sér ærlega í ran- ann, lagðist langsum yfir þóft- una, dró kaskeitið yfir and- litið og blundaði. Við erum þöglir, vitum það af gamalli reynslu, að menn sofa ekki alltaf, þótt þeir hrjóti. Nei, það er bezt að tala sem fæst um þennan róður, að minnsta kosti hér. Svo rís karlinn upp, klórar sér í höfðinu og nuggaraugun. — Hefur hann lygnt?. — Ég held ekki, svara ég. — Víst hefur slegið á. Það er komin hvíta blíða, mál að draugast af stað, ef við eigum að ná háttum í Nesi. Rífið UPP stjórann. Við gerðum eins og fyrir okkur var lagt. Svo er róið af stað. Við þræðum með fjör- unum og fjöllin eru svo nálæg Frh. á bls. 33. Þórarinn Kristjánsson VtSUR MYVATN Í952 Oft í gleði eSa hryggS, er vor hugsun tryggS. LangaS mig hefur löngum afi líta MývatnsbyggS. FRELSI Er nokkufi framar frelsi? Fellur og rís hafalda. Leiddu hugsun til heilla, hamingju sanna finnur. StjórnaSu hug og hendi, hataSu ei neitt, sem lifir. AS finna samúS sanna er sæla mesta lífsins. JÓLAKVEÐJ A Yl í hjarta og fógnuS finn, frjáls sé halur, mœr, AS Hofi leitar hugurinn þá hátíSin er nœr. Fönnin hrein sem fljóS viS lín, þar finnast engin nöfn. Þó adressan sé aSeins þín, til allra er kvéSjan jófn. ÁRAMÓT * AriS eitt er horfiS burt á braut, búiS hefur okkur sœld og þraut. ÞaS gaf og tók, þaS gladdi og hryggSi þig, þaS gjörSi eitthvaS svipaS fyrir mig. heimilisblaðið [15]

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.