Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1953, Side 26

Heimilisblaðið - 01.01.1953, Side 26
nógu margir farizt í örlaga- hriðum undir skínandi sól. En látum þá halda áfram með nokkurri hófsemi. Dagur- inn tekur að hniga að kvöldi. Og bláminn á himinhvelfing- unni verður rikari en gylling sólgeislanna. Vindsvalt er á háfjöllunum. Gamlar hendur kreppast fast um broddstafinn, sem stingst gegnum mosann á hásléttunni; hundurinn leggur niður rófuna og geigur læðist í brjóstin. Vorbjört nóttin er annarleg svona langt frá öllu, sem heitir byggð. Yfir þögl- um hrjóstrum, sem komu seint undan vetrarfönnunum, hvílir hrollvekjandi dul. Þá er það, að létt og nærri hljóðlaust fótatak heyrist að baki ferðalanganna. Og er þeir gá að, sjá þeir kisa gamla. Hann er kominn á eftir þeim, með mús í kjaftinum, hefur fundið hana á leiðinni og tímir ekki að skilja hana eftir. Nú finna hinir, að þeir eru svangir. Vorþokan leggst yfir litla hóp- inn á auðninni. Fyrst verður hennar vart inni yfir jökulbungunni. Svo eru flókar að læðast kringum hnjúkatindana frammi á dal- brúninni. En yfir hásléttuna svífur léttur reykur, sem þétt- ist smám saman. Snæhetturn- ar á tindimum reka kollana upp úr gráu kafinu, eins og skalla á gömlum tröllkörlum, sem halda vörð um dalinn, til að gleypa allt, sem þaðan kem- ur. Svo hafa þeir sofnað í há- degisværð, meðan Árni gamli læddist fram hjá þeim með fylgdarliði sínu. Og nú eru þeir að klóra sér á gljúfraskrokk- unum, bora upp í helliskúta- nefin og snýta sér, svo að klettaflygsurnar þjóta í allar áttir. Grjóthrunið syngur tröllslega í næturkyrrðinni. Og nú fer fyrst að koma til- gangur í söguna, þegar þokan er svifin á. Árni gamli hefur alla ævi sína verið ósköp þýð- ingarlítill maður, að því er virðist, stefnuleysið í samræmi við litlar gáfur, eins og til dæmis þetta núna, að ganga á vit örmögnunarinnar, þegar einstæðingskapur og sorgir ellinnar ætluðu að buga hann. Viljinn var alltaf mestur í óskadraumum um gósenlönd inni í blámóðuþrungnustu hill- ingum öræfanna. Og þangað ætlaði hann að flýja frá Grýt- unni sinni, þegar börnin voru öll komin út í veröldina og varginn. En nú á hann allt í einu voldugt takmark, þar sem hann er staddur í öræfa- þokunni, og það er: að snúa við, læðast aftur fram hjá hnjúkatröllunum. Þessu tak- marki nær hann á sömu stund og honum verður ljóst, að hann vill keppa að því. Aldrei áður á sinni löngu ævi hefur hann verið svona mikil hetja, og hann skálmar aftur fram á dalbrúnina. Hvolpurinn er al- veg ær af gleði yfir stefnu- breytingunni, og kisi gamli hefur sleppt músarhræinu og sett upp stýrið. Árna gamla varð það ljóst, þegar kisi kom að elta hann núna, að hann var ekki einn og yfirgefinn í ellinni. Þeim þótti vænt um hann, þessum tveim ferfættu dýrum. Og var það kannske ekki nóg, til að lifa ánægður áfram og annast þessa vini sína? ógjarnan vil ég missa sjón- ar á þeim félögum. En mér þýðir ekki að sitja í Hliðskjálf og horfa yfir þokuheim mann- lífsins úr fjarska, svo að ég læðist á hæla þeim. Gæti þess að láta mín ekki verða vart. Þú getur komið með, lesandi! Það er háðuleg þátttaka, að sitja bara við að lesa þetta. Við heyrum að Árni gamli er farinn að raula vísu og talar þess á milli við hundinn og köttinn. Þarna hendist karlinn klof- vega á stafnum ofan í djúpt og bratt gildrag, og það síð- asta, sem við sjáum, eru tvö loðin skott, sem stingast þang- að fram af líka. Þeir eru horfn- ir, en urgið í stálbroddinum heyrist niður allt gil. Einstaka gelt bergmálar í fjallinu. Það er litli seppi, sem er að lesa sínar ferðabænir. En við er- um orðnir langt á eftir, og bezt að fara varlega, þangað til kemur niður úr þokunni. Loksins tekst það. Við kom- um niður í bratta hlíð og þoku- lausa, þar sem gilið gegnum klettabeltið tekur enda. En neðan við brekkuna, niðri á grávíðisholtinu, ris stafurinn frá jörð, við dálítinn runna og tvö lítil húsdýr sitja hjá. Inni í runnanum krýpur Árni gamli og það er engu líkara en hann sé að biðjast fyrir. Sé svo, hefur hann ekki valið sér óveglegt altari. Og uppi yfir ljómar kirkjuhvelfingin, sjálf- ur vornæturhiminninn, að vísu með svífandi þokuflóka hér og þar, en þó blár og blíður, djúp- ur og dulrænn, eins og eilífðin, sem bíður að baki þessari stund. [22] HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.