Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 2

Heimilisblaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 2
Sölumaður út i fingurgóma! Charles Schnabel, sem hafði með höndum sölu á fjörefnispillum, kom nýlega akandi inn í litið þorp i Texas, þar sem hann ók á aðra bifreið. Tjónið á hinni skemmdu bifreið var lauslega metið á 100 dollara, en Schnabel bætti skjótt úr þvi með því að gefa bifreiðastjóranum hálfs árs birgðir af fjörefnis- pillum. Þegar lögregluþjónn kom á staðinn og tók skýrslu, seldi Schnabel honum þegar í stað eitt glas af pillum, og þegar bifreiðastjórarnir tveir komu síðar fyrir rétt, seldi hinn áhugasami sölumaður enn nokkur glös og í þetta skipti dómaranum (nam það álíka upphæð og hann fékk í sekt eða um 5 dollurum). Til þess að hindra son sinn Harry í að giftast dansmærinni Leoni frá Metropolitan, lét Helen Bolt frá New York leynilögregluskrifstofu eina útvega sér siðferðisvottorð um hegðan stúlkunnar. Þar stóð meðal annars: „Bezta orð fer af henni, nema hvað hún hefur í seinni tíð sézt í fylgd með Harry nokkr- um Bolt, sem sækir vafasama veitingastaði!" Prú Bolt samþykkti þar næst að giftingin mætti fara fram. Óþefekt ljóshærð stúlka faðmaði Maurice Ragnot að sér úti á götu í París, kyssti hann og fór síðan burt um leið og hún afsakaði sig með því, að hún hefði farið mannavilit og haldið að þetta hefði verið frændi sinn. Seinna komst maðurinn að raun um, að peningaveski hans hafði verið stolið á meðan á hinum hjartanlegu faðmlögum stóð. Johnny Earhart, 6 ára gamall, kom grátandi heim til sin og sagði föður sínum, Earhart dómara, að hann gæti ekki séð töfluna í skólanum. Áhyggju- full móðirin fór með hann til augnlæknis. Hann rannsakaði drenginn í tvær klukkustundir sam- fleytt og fann ekkert athugavert. Þá spurði hann: „Hvers vegna getur þú ekki séð töfluna?" Johnny sagði: „Af því það situr svo mikill fitubolti fyrir framan mig!“ Kirkjugarðsvörðurinn í Cetera (Ítalíu) uppgötv- aði, að lík hins 57 ára gamla Fernando Trusiano hafði horfið um nóttina. Þegar hann ætlaði að skýra aðstandendunum frá þessu, hitti hann hinn látna mitt á meðal þeirra við morgunverðinn. Fernando hafði aðeins verið í dauðadái og hafði af eigin rammloik komizt heim til sín. Þeim fækkar sífellt, sem nota hatt fyrir höfuð- fat. Fjöldi manna gengur nú orðið berhöfðaður ar, ið um kring. Siðurinn „að taka ofan“ i kveðjustó^ er því óðum að hverfa. — Ekki vita menn b\'a þessi siður, ,,að taka ofan", er kominn, en sU halda, að hann hafi áður fyrr átt að vera ta . fvtir þegnanna um, að þeir vildu fórna höfðinu w kónginn. — Seinna fóru svo kóngarnir sjálfu" „taka ofan" fyrir þegnunum. Til dæmis gerði G VI. það, faðir Elísabetar drottningar, þegar h8n kvaddi járnbrautarstjórann, að enduðu - En sá sem á met á þessu sviði er eflaust FraK Adrien Valles. Hann tók meira að segja ofan ^ hverjum einasta hundi, sem varð á vegi hans. ar hann var krakki, hafði hann verið vonduf heimilishundinn. Fyrir það lagði faðir hans Þa 1 ^ ingu á hann, að hann átti næstu tíu ár á eftu4 hau” ;ldu „taka ofan" fyrir hverjum einasta hundi, setn mætti. En að tíu árunum liðnum, gat hann hætt því, að „taka ofan" fyrir seppa. Hóteleigandi einn í Washington auglýs*;1’ ^ „börn" yfir áttrætt, sem kæmu í fylgd með jj hvoru foreldra sinna, fengju frítt uppihald á Þ0 sínu, Hann varð ekki lítið undrandi, er fyrsta ,>0 ið“ gaf sig fram, stuttu eftir birtingu auglýsl , : ittle vit®11' innar, 82 ára gamalt stúlku-,,barn“ frá Sea1 fylgd með pabba sínum, 106 ára gömlum. Og lega annaðist gestgjafinn þau með mestu um- ,hy$iu meðan þeim þóknaðist að dvelja í höfuðborg1 inu1. Hjá tryggingarfélaginu Lloyds í London, þar seU1 f try^' allt er hægt að tryggja, eins og kunnugt er, frú d’Otage frá Nantes nýlega tárin sín. ingarsamningnum heldur hún því fram, að leiki sinn til að gráta tárum sé í það míuu g 450.000.00 króna virði, því að fyrir þeirra a hafi henni hlotnast á skömmum tíma eftirf®1 ^ gjafir frá eiginmanni sínum og föður: Tvær b1 ^ ar, margir dýrindis loðfeldir og loks vandaður fallegur sumarbústaður. „Hvernig á að ala upp foreldra sína“ — er titu* :ð»u. bókar, sem kom út í New York fyrir nokkru sl' ^ eftir Gloriu Francis. Gloria segist hafa verio ^ leið á að horfa sífellt á stóra hlaða af bókuU1 ^ barnauppeldi með síendurtuggðum ráðleggingu111■ „Aðalósamkomulagið milli foreldra og barna s^p af því, að börn verða svöng milli máltíða °g ^ þá fá eitthvað að borða aukalega, en foreldf® vilja ekki gefa þeim aukaskammt," skrifar 0 Hún er 9 éra gömul. 08 tt • >i> i í •*,••* Kemur út annan hveru Heimilisblaoio uð_ tvö tölublöð blaðsíður. Verð árgangsins er kr. 50,00. I 1®U ^ kostar hvert blað kr. 10,00. Gjalddagi er l^- ^jjt Útgefandi: Prentsm. Jóns Helgasonar. Utauas ^ Heimilisblaðið, Bergst.str. 27, Reykjavík, Pósth'

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.