Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 28

Heimilisblaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 28
DORNFORD YATES: Vilji örlaganna XI. kafli. Tómas og Marteinn hnipruðu sig saman í skurðinum, rétt við vegamótin, og notuðu augu og eyru vel. Þeir höfðu yfirgefið höllina um það leyti sem myrkrið skall á, og Tómas hafði sjálfur litið eftir því, að hliðið og bakdyrnar væru rambyggilega læst. Hann hafði skipað svo fyrir, að Konráð og Jósef væru á verði alla nóttina, þangað til að þeir kæmu aftur. Katrín hafði hátíðlega lofað honum, að hún skyldi ekki fara út fyrir hússins dyr, heldur halda kyrru fyrir í vinnuherbergi föður síns, þangað til hún gengi til náða. Tómas og Marteinn höfðu verið i burtu í sex klukkustundir, og þótt þeir hefðu farið víða, höfðu þeir ekki séð neitt til þorpar- anna. Þeir höfðu skroppið til Ousse og geng- ið úr skugga um, að bifreiðin væri þar enn- þá, og í bakaleiðinni höfðu þeir farið svo ná- lægt höllinni, að Tómas stóðst ekki freist- inguna að koma þar við til að fullvissa sig um, að þar væri allt með kyrrum kjörum. Þeir gáfu sitt venjulega merki, og einni mínútu síðar hleypti Konráð þeim inn. Hann sagði, að allt væri með friði og spekt, Jósef væri í eftirlitsferðum sínum um höllina og ungfrú Katrín sæti í vinnuherberginu. Rólegir vegna þessarar vitneskju héldu þeir áfram ferð sinni inn dalinn, yfir tungl- skinslýstar engjar, upp að skóginum. Það var skammt til dögunar, og það leit enn út fyrir, að allt myndi fara að óskum. „Þorpararnir eru ef til vill famir burtu,“ sagði Tómaas. ,,En ég trúi ekki öðru en að þeir hafi skilið einhvern eftir til að fylgjast með gerðum okkar.“ Þegar þeir héldu til baka yfir engjarnar, vara farið að birta af degi. Stígurinn, sem lá upp að höllinni, var dimmur, en það var orðið nógu bjart til þess, að Tómas gat séð úr sex skrefa fjarlægð, að maðurinn, sem lá endilangur þvert yfir stíginn var enginn 6. hluti þessarar spenn- andi framhaldssögu um ástir og baráttu við óvægan glæpalýð .... annar en Konráð. Hann lá þarna með aD litið á grúfu. Þegar Tómas sneri honum vl gaf hann frá sér lága stunu og opnaði aUguD „Fóturinn minn, herra. Hann hefur brot1^ að. Ég rann og datt. Ég ætlaði að fara a kalla á þorpsbúa mér til hjálpar. Þorpar arnir sluppu inn.“ „Guð minn góður,“ hrópaði Tómas yfir sig. „Og Jósef, hvar er hann?“ „Ég er hræddur um að hann sé dáio1^ Hann liggur fyrir neðan gluggann. Éf? mér ekki tíma til að athuga það.“ . Tómas hafði það á tilfinningunni óefni væri komið, og hjartað barðist í brj°s hans. „Hvað er með Katrínu?“ ' spurði haDl1 ákafur. „Ég veit ekki, hvernig ástatt er fr1^ henni, herra. Ég veit bara, að þorpararDir eru inni hjá henni — ég heyrði Shamer ta ‘ við hana. Þá komst ég að því, að þeir vmrl1 komnir inn.“ Tómas hristi höfuðið eins og manneskJ3, sem kemur upp á vatnsyfirborðið eftir lan^ varandi köfun. „Já, en hvernig komust þeir eigird6^! inn? Fóru þeir inn um gluggann?“ SPU Tómas. . „Já, það held ég, herra. Ég get ekki skili_^ að þeir hafi komizt eftir annarri leið, P hljóta að hafa gefið merki yðar . . . •“ - Tómas tók til fótanna. Marteinn þrel handlegg hans. „Rólegur, Tómas,“ sagði hann. ,,Ef " 248 — HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.