Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 6

Heimilisblaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 6
horfið af fjallstindinum Monte Cairo í norðri. Hið milda, hlýja aftanskin breiðir sig yfir allt. Runnar rósa og trjáa anga í skuggum klettahlíðanna. ÍJt um gluggana sjást hvolfþök kirkjunnar og basilíkunnar. Hér inni er allt fullt af bókum, og hvar- vetna rek ég augun í áletrunina Tipogrcifia di Monte Cassino. — Klaustrið hefur sína eigin prentsmiðju, Ijósmyndastofu og öll þau nútímatæki, sem þarf til að ganga frá bókum og endurútgáfum. . . . Á árunum 1348 og 1351 heimsótti hinn frægi rithöfundur Boccaccio, höfundur De- camerons, þetta klaustur. Samtíðarhöf- undur hans segir svo frá þeirri heim- sókn: ,,Þegar Boccaccio dvaldist í grennd við Napoli, langaði hann til að heimsækja hið fræga klaustur á Monte Cassino, til þess að skoða bókasafn þess. Hann gekk á fund eins munkanna, þegar þangað kom, og bað hann að opna fyrir sig safnið. Munkurinn leit á hann illilega og svaraði: ,,Það stend- ur opið — gangið bara inn!“ Boccaccio komst þá að raun um, að bókasafnið stóð ekki aðeins lykillaust, heldur beinlínis hurðarlaust. Gluggahlífarnar voru fallnar frá, bækurnar á tvist og bast út um gras- flötina fyrir utan og hvarvetna í salar- kynnunum, rykugar og óhreinar út um allt. Sumar þeirra voru rifnar í tætlur, og sama máli gegndi um verðmætustu handrit. Al- talað var, að munkarnir seldu þau fyrir fáein soldi börnum og konum í héraðinu — svo að þau gætu notað spássíurnar til að krota á! Þegar Boccaccio kom aftur frá klaustrinu, viknaði hann, er hann minnt- ist þess, í hvílíkri niðurlægingu það var í.“ Hið sama talar Dante um í 22. söng ,,Paradísar“, þar sem hann segir frá fundi sínum og stofnanda klaustursins, heilags Benedikts, og bætir við: Nú lengur enginn fús er til að fara á fjallið wpp, en boð mín eru brotin í eyðilegging fornra skjala og skrifta. Innan við múrinn, áður klausturvé, 226 ræningjábæli blómgast nú á tímum, og munksins kufl ei mjöli héldi lengur. ■ ■ En jafnframt siðaskiptunum óx kaþólsk- unni ásmegin. 1 klefa einum í Monte Cas- sino hefur stofnandi Jesúítareglunnai’, Ignatius Loyola, búið sig undir köllun sína og fastað í 50 daga og beðizt fyrir. Vegg' tafla í klefa þessum er vitnisburður þessa enn í dag. Andartak skulum við hverfa aftur til ársins 1805, er hinn mildi og hámenntaði dr. Aurelio Visconti er ábóti klaustursins- Massena hershöfðingi, sem Napoleon kall' aði „Son sigursins" og bróðir keisarans Joseph Bounaparte heimsækja klaustrið Þ- 14. febrúar. Frakkarnir eru klæddir háum lakkstígvélum, með fjaðurskúfa í hatti, hvítum brókum og heiðbláum síðjökkun1 með gullsaumuðu hálsmáli, og sem sann- trúaðir kaþólskir menn beygja þeir sig fyrir hinum æruverðu munkum: Signa1'1 vopnanna heilsar meinlætamönnunum með lotningu. Því það var einmitt þessi munka' regla, sem tók máli Galileis, þrátt fy1’11 ofsókn kirkjunnar sjálfrar á sinni tíð, og hafði allajafna staðið í fararbroddi fyrl1 vísindastarfi kirkjunnar öldum saman. Hinn ungi Bounaparte, prins og hershöfð' ingi, leit nú með undrun alla þá auðleg^ og skraut, sem klaustrið bjó yfir, þegal hér var komið sögu, og var vitni að ið111 og ósérplægni munkanna. ,,Ef það er nokk' uð, sem ég get gert fyrir ykkur, þá skrif1® mér persónulega,“ sagði hann um leið hann kvaddi og fór. En varla var hann kominn til Napöi1; þegar hann útbjó skjal, þar sem hann lag^1 hald á eigur Benediktanaklaustranna allra annarra klaustra, svipti þau forrétt indum þeirra og fyrirskipaði, að arnir skyldu þrengja að sér sem mest ul11 húsrými. Að lokum tók hann undir sjálfal1 sig hið verðmæta bóka- og handritasaf11 Monte Cassino. Það var aðeins fall NaP° leons skömmu síðar, sem kom í veg fyrir’ að klaustrið færi gersamlega í eyði. Framhald á bls. 2®® heimilisbla£,iP

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.