Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 28

Heimilisblaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 28
„Og vegna hr. Róberts, sem liggur hér ósjálfbjarga, frú.“ „Hryllilegt — hryllilegt, Frost.“ „Það verður að segja honum frá þessu með ýtrustu gætni, þegar hann kemst til meðvitundar. Eða hefur frúin hugsað sér að stöðva þau?“ „Ég veit ekki einu sinni, hvar ég ætti að leita þeirra, Frost.“ Það er þá þannig, hugsaði hann og svar- aði: „Þetta er mjög dapurlegt, frú. Ég skal sjá um, að ekki verði um þetta rætt meðal starfsfólksins hér.“ „Þakka þér fyrir, Frost. Því minna sem þetta spyrst út, þeim mun betra.“ Hún gat ekki leynt hinn reynda þjón gleði sinni og létti, enda gerði hún enga tilraun til þess. Að sjálfsögðu varð hann að segja það, sem við átti, en síðan varð allt að fara á þann veg sem verkast vildi. Engu að síður var honum fullljóst, að frúin var hin ánægðasta. Allt nágrennið vissi, að hún hafði óskað eftir Rinnu sem tengda- dóttur. Og þeir voru ekki margir, nágrannarnir, sem vissu það enn, að Róbert hefði kvænzt. Tía hafði komið, en farið aftur eftir tvo daga. Hún hafði ekki valdið svo mikið sem gáru á hinu rólega yfirborði hins dag- lega lífs — og myndi ekki heldur fá tæki- færi til þess héðan af. En hvað um Róbert. . . . ? Við Rinna munum áreiðanlega ná á honum réttum tökum með gagnkvæmri hjálp, hugsaði hún. Hún fór niður í dyngju sína, aflæsti, og hringdi til Rinnu. „Elsku Rinna mín, þetta er Dahlia. Róbert hefur liðið ágætlega í nótt. Ertu fáanleg til að skreppa til mín sem snöggvast?" „Ég er nýkomin inn úr reiðtúr, og það fæddist kálfur í nótt. .. .“ „Það er nokkuð skelfilegt, sem ég þarf að segja þér, elskan mín. Martin er farinn leiðar sinnar og hefur tekið Tíu með sér. Hann er á leið með hana suður á eyjuna sína og óskar þess, að Róbert sæki um skilnað.“ „Dahlia....!“ „Þau hafa auðsjáanlega lagt af stað seint í gærkvöld, og í morgun rakst Clara a bréf til mín frá honum í herberginu hans, þar sem hann gefur þá skýringu. . . . “ „Ég hefði aldrei trúað því, að Martin gæti komið fram við þig og Róbert af öðru eins tillitsleysi. Þegar Róbert liggur hjálp- arlaus og ófær um að gæta konunnai' sinnar!“ Þú hljómar eins og samæfð rödd í kói', hugsaði Dahlia, ég og þú munum áreiðan- lega komast vel út úr þessu — með sam- eiginlegu átaki. Upphátt svaraði hún: „Það er voðalegb að annað eins og þetta skuli geta gerzt undir mínu eigin þaki, Rinna. Ég er bein- línis miður mín. En þú kemur hingað eins fljótt og þú getur.“ Dahlia sat yfir morgunverðinum, þegaf tilkynnt var koma Richards Kampe. „Biðjið herra Kampe að bíða“, svaraði hún virðulega. Rinna kom og hitti Dahliu úti í gai’ðin- um. Rinna hafði ekki gefið sér tíma til þess að fara úr reiðfötunum, heldur sezt í bílinn þegar í stað. „Ö, elskan. . . .!“ „Elsku bezta. . . .!“ Þær léku skopleik hvor framan í annari% rétt eins og konur af betra tági gera svo gjarnan, þegar þær skilja hvor aðra út 1 æsar. „En hræðilegt!" — „En viðurstyggile^a tillitslaust!“ — „Að Martin skuli geta gelt annað eins!“ o. s. frv., o. s. frv. í sama dúr. „Og nú er þessi ómerkilegheitastrákm kominn hingað enn einu sinni. — Frost, látið hann bíða frammi í blómastofun11*' Þarna stendur hann og glápir hingað út ti okkar. Vinkaðu til hans,“ sagði Dahlia- 248 HEIMILISBLAÍÚ5

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.