Heimilisblaðið - 01.12.1964, Side 38
sér niður í skemmtilega skáldsögu, sem
aldrei gat þó orðið — hugsaði hún — eins
spennandi og lífið sjálft.
öðru hverju leit hún á tóma rekkjuna
við hlið sér. Henni fannst hún vera eins
og brúður sem beið. Aldrei fyrr hafði hún
fundið til eins mikils öryggis gegn harð-
neskju tilverunnar. En hins vegar hafði
hún heldur aldrei — jafnvel ekki þegar allt
var í sem mestri óvissu varðandi Róbert
— fundið til annars eins óróleika hið innra,
spennings, sem hún naut.
Hún óskaði þess, að Martin vildi koma
inn til hennar. Hún sagði við sjálfa sig,
að hún óskaði þess. Hún óskaði að byrja
þegar í stað — nú í nótt — að lifa á þann
hátt sem ætlunin var að þau lifðu á hinni
æfintýralegu eyju hans. Hún óskaði ÞesS
ekki lengur að halda sér fjarri lystisemd-
um lífsins, enda þótt formsatriðunum vserl
ólokið. Hún fann það sjálf, að hún var
reiðubúin að taka á móti honum — nú a
stundinni. Hin heimskulega þögn skyldi
einmitt nú vera rofin.
Skynjun Tíu var óvenju skörp þessa
stundina, og ekki leið á löngu, unz hm1
heyrði til Martins inni í káetunni við hlið'
ina. Síðan varð allt kyrrt. Það var eins
og skipið allt tæki á sig grafarþögn
sofnaði á samri stundu. Og enn leið stund-
in, án þess að Martin bankaði á dyrnal
hjá henni — þessar dyr, sem þó v°rU
ólæstar. Framhald.
258
í bókasafni Vatikansins í Róm
hefur verið til sýnis minnsta
bók, sem hefur verið gerð, hún
er aðeins 14 blaðsíður, og hef-
ur að innihaldi Faðir vorið á
sjö tungumálum, með svo
smáu letri, að nota verður
stækkunargler við lesturinn.
<—
Knattspyrna krefst mikillar
þjálfunar. Leikmennirnir þurfa
að vera góðir í fimleikum. Hér
á myndinni sést knattspyrnu-
maður frá Möltu leika listir
sínar. Hann leikur með enska
félaginu Queens Park Ranger.
Þetta risastóra bíldekk var á
heimssýningunni í New York.
Á því eru körfúr eins og á
Parísarhjóli.
<—
Konan hér á myndinni lítur
ekki út fyrir að vera sann-
færð. Hún fær ekki skilið hvers
vegna listamaðurinn hefur
kaliað þetta verk sitt „Sann-
færingu". Listaverkið er eftir
Klaus Giessler, sem tók þátt
í samsýningu félagsins „Ung-
ir myndhöggvarar", sem hald-
in var fyrir skömmu í Rodin-
safninu í París. —>
HEIMILISBLA