Heimilisblaðið - 01.03.1969, Síða 35
ViÖ. sem vinnum eldhússtörfin
Allar húsmæður þekkja matarleifar, sem
tarf að nýta. En hvað á að gera til að gera
þær girnilegar? Ágæt lausn er að búa til
pie-deig og nota þær leifar sem fyllingu, sem
fyrir hendi eru.
Fiskréttur í pie-deigi.
Veigið: 350 gr. hveiti
250 gr. smjör eða smjörlíki
2 msk. kalt vatn
2 msk. mjólk eða rjómi
% tsk. salt
1 egg til að pensla
Fylling: 150 gr. hrísgrjón
500 gr. soðinn fiskur
3 liarðsoðin egg
steinselja (ef til er) salt
Saxið smjörlíki og hveiti saman, bætið salti
við ásamt vatni og mjólk. Hnoðið deigið fljótt
°g vel saman og látið á kaldan stað í hálf-
tíma (gjarnan í kæliskápinn). Sjóðið laus
brísgrjón (og síið þau). Blandið hrísgrjón-
iinum síðan saman við hreinsaðan fiskinn
°g söxuðum harðsoðnum eggjum ásamt sax-
aðri steinselju. Kryddið með salti. Klæðið
form með pie-deiginu, látið fiskinn út á og
tótið deiglok yfir. Pikkið göt á deigíokið og
Penslið með samanþeyttu eggi. Bakist við
góðan hita ca 250° í 12—15 mín. Það er gott
að búa til hollandaisesósu með þessum rétti.
ítalskt pie.
Pie-deig: 200 gr. amjör eða smjörlíki
250 gr. liveiti
4 msk. vatn
Fylling: 2 tómatar
8 ansjósuflök
2 msk. rifinn ostur
salt og pipar
Saxið smjörlíki og hveiti saman og hnoðið
^eigið fljótt og vel og látið á kaldan stað of-
nrlitla stund. Fletjið út lengjur ca 12X30
sm og látið hana á plötu. Raðið niðursneidd-
tómötum eftir miðri lengjunni, stráið pip-
ar og salti yfir, leggið ansjósurnar á ská yfir
fómatana. Stráið rifna ostinum yfir. Brjótið
rendurnar til hálfs yfir fyllinguna, báðum
megin. Stingið eldspýtum í kantana á með-
an verið er að baka, annars geta þeir losn-
að frá. Bakist við góðan hita 225—250° í
12—15 mín.
Osta-pie.
175 gr. hveiti
100 gr. smjör eða smjörlíki
ofurlítið salt
1 msk. kalt vatn
Fylling: 3 egg
3 dl. mjólk
100 gr. reykt skinka
1% dl. rifinn ostur
lítil dós af niðursoðnum rauðum pipar
Ilnoðið deigið eins og venjulega. Klæðið ofn-
fast fat með deiginu. Látið rauða piparinn á
botninn ásamt ræmum af skinkunni. Þeytið
eggin saman, þeytið mjólkina saman við og
að síðustu rifna ostinum. Hellið þessari
blöndu yfir skinkuna og piparinn. Látið strax
inn í ofninn við góðan hita, 250° í um það
bil 25 mín.
Hér er svo uppskrift af nokkrum góðum
og fljótlegum eftirréttum (ábæti).
Epla- eða aprikósuábœtir:
1 y2 dl epla eða aprikósumauk
2 eggjahvítur
5 stórar makrónur
1 dl. rjómi
Þeytið eggjahvítumar þangað til þær eru
alveg stífar og þeytið smámsaman maukið
saman við. Þeytið vandlega. Myljið makrón-
urnar og leggið í ábætisglös ásamt epla- eða
aprikósufroðunni, þannig að fyrst er látið
lag af froðu, síðan makrónur og aftur froða
o. s. frv. Skrevtið með þeyttum rjóma.
Sunnudagaábœtir:
% 1. rjómi
ofurlítið af negul
150 gr. vínber (helzt bæði blá og græn)
10 marengskökur
Stífþeytið rjómann og látið negul út í og
HEIMILISBLAÐIÐ
79