Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1977, Side 8

Heimilisblaðið - 01.03.1977, Side 8
þré á meðan ég var burtu?“ spurði hann í áberandi kæruleysislegum tón. „í fyrradag skrapp ég til Jeanne Liévin til að skoða nýju íbúðina hennar.“ „En á kvöldin?“ ,,Þá var ég bara heima og hlustaði á útvarpið." „Varstu ein?“ „Já, ég var alein. Ég var búin að gefa Régine og Victoire frí.“ „1 hvernig kjól varstu?“ „Þessum rauða með gulu rósunum." Olivier þagði við andartak, eins og hann væri að hugsa sig um, leit á hana nokkuð íbygginn og bar síðan fram þessa undar- legu spurningu: „Hefurðu nokkurn tíma farið á dans- leik í Boule bleueV‘ „Nei, lieyrðu mig nú! Ég þekki þann al- ræmda stað aðeins af afspurn; en hvers vegna spyrðu mig að því?“ „0, ekki af neinu sérstöku . . . eða vegna þess að ég hef í hug að fara þangað ein- hverntíma.“ Eftir þetta kvöld var Olivier breyttur maður. Það hlaut að vera eitthvert samband milli kjólsins hennar, Boule bleue og kuldalegrar framkomu Oliviers, en Liane skildi ekki hvernig það mátti vera, og ekki þorði hún að spyrja neins. Hugsanir hennar voru truflaðar við það, að vinnustúlkan Régine kom inn með sendibréf, klædd eins og hún væri að fara að heiman. Liane leit á stúlkuna og hálfhrópaði: „Er það sem ég sé? Hvernig leyfið þér yður að fara í rósótta kjólinn minn?“ „0, það myndi ég aldrei leyfa mér að gera, frú. En mér fannst sá kjóll svo fal- legur; og þar sem ég vissi, hvar frúin hafði keypt efnið í hann, þá keypti ég mér samskonar efni og fékk saumakonu til að líkja eftir sniðinu." „Jæja. En þér eruð ekkert að biðja mig leyfis. Annars er ég hissa á því hvað þér klæðið yður hátíðlega, úr því þér eruð bara að fara í heimsókn til bróður yðar.“ „Ojæja, ég er svosem ekki að því. En hann fer stundum út með mig til að dansa.“ „Kannski í Boule bleueV' „Eg þykist vita, að frúin hafi eitthvað heyrt um það,“ svaraði stúlkan og roðn- aði. „Frúin hefur semsagt heyrt, að . . .“ Allt í einu rann upp ljós fyrir Liane, en stúlkan hélt áfram: „Frúin má ekki vera reið mér, þótt ég hafi þannig dul- búið mig eins og hún sjálf. Frúin man sjálfsagt eftir hr. Bourdier, unga lög- fræðingnum, sem kom fyrir nokkru til að hitta húsbóndinn, — hann var þarna á staðnum. Þar, í Boule bleue, þóttist hann þekkja kjólinn aftur, og hann sagði kon- unni sinni frá mér. Ég varð svo hreykin af þessu, að ég kom mér ekki til þess að leiðrétta misskilninginn.“ „Vesalings stúlka .. . nú skil ég hvern- ig í öllu liggur; hann hefur haldið, að þér væruð ég.“ Liane stóð upp. Hún virtist verða stærri en venjulega, og það kom svo strangur svipur á hana, að stúlkan féll á kné við fætur hennar. I sama mund kom Olivier inn úr dyrun- um. „Hvað er eiginlega að ske hér . . . Hvað í ósköpunum?" spurði hann gáttaður. „Régine gefur þér sjálfsagt skýringu á því,“ sagði Liane, og bætti við um leið og hún gekk út úr stofunni: „Þú virðist hvort sem er trúa öðrum betur en mér.“ Kennarinn: Hvaða fjögnr orð eru mest notuð her í bekknum? Nemandinn: Það veit ég ekki. Kennarinn: Alveg rétt. Þjónninn: Hrísgrjónavellingur með rúsínum kostar 25 krónur. Gesturinn: Hvað kostar hann þá án rúsína? Þjónninn: 35 krónur. Gesturinn: Kostar hann virkUega meira án rúsína? Þjónninn: Já, ég tek 10 krónur fyrlr að tína þær úr. 44 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.