Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1977, Síða 9

Heimilisblaðið - 01.03.1977, Síða 9
Annað bruðkaup SMÁSAGA EFTIR MURIEL A. KING Það var búið að spenna upp hátíðlegt og röndótt sóltjald við aðaldyr St. Mark- úsar-kirkjunnar þegar Audrey átti leið þar framhjá á þönum. Hún fann fyrir einkonar sting í hjartastað og leit ákveð- in í aðra átt. 1 dag er einhver að láta gifta sig, og þetta sem átti að verða brúðkaupsdagur- inn minn! hugsaði hún, og hún deplaði augunum, því að minnstu munaði að tár- in spryttu fram. — Það er sjálfsagt ung- frú Moffat, sem er að ganga í það heilaga. Nú verður ekki talað um annað í allan dag en brúðkaupið, í verzluninni, því að við eigum að sjá um kirkjuskreytinguna. Það var svo sem nógu öfugsnúið, að hún skyldi einmitt í dag þurfa að vera önnum kafin við giftingu annars fólks! En það var ekki um annað að gera en rétta úr bakinu og standast raunina. Enginn mátti verða þess var, að hin nýja afgreiðslustúlka í blómaverzluninni Pamelu hefði áttt að giftast í dag, — ef ekki hefðu orðið endaskipti á tilverunni fyr ir um það bil hálfu ári. Ef — já, þetta litla orð, sem gat svo niiklu skipt, — ef að faðir hennar hefði ekki orðið gjaldþrota og látizt áður en hann gat komið fjármálafleyi sínu á rétt- an kjöl. Ef aðeins Frank hefði verið heima °g getað tekið hana í faðminn og sagt, að engu máli skipti um fjármunina og að hann vildi ekki að hún sliti trúlofuninni °g axlaði þannig byrðina ein! Ef — ef — ef —-!• „Það þýðir ekki að vera með neitt vol,“ sagði Audrey við sjálfa sig. „Það er allt mín eigin sök. Það var alls ekki Frank, Sem sleit trúlofuninni. Það var ég sjálf sem það gerði. Ég gat ekki ætlazt til þess að hann gengi að eiga stúlku, sem hafði bæði móður og systur á framfæri. Eg varS að binda endi á það allt. Það var það eina rétta gagnvart honum.“ Engu að síðui’ hafði hún grátið af löng- un eftir honum. Slíkt hafði hún oft og iðulega gert, síðan hún sendi honum hið örlagaríka bréf ásamt hringnum. Þá stund hafði hún innst inni verið svo viss um, að þrátt fyrir allt þetta sem hún skrifaði — þá myndi Frank ekki snúa við henni bak- inu. En það hafði hann gert! Þau höfðu ætlað að gifta sig einmitt í dag. Þau höfðu verið búin að ákveða dag- inn svona löngu fyrirfram, vegna þess að þau vildu gifta sig einmitt þann dag þeg- ar liðið var ár frá því að þau kynntust. Þess í stað átti hún nú á þessum degi að heyra talað um það, hversu yndisleg blóm- in hefðu verið — sem skreytt höfðu at- höfnina í tilefni annarrar brúðar. í kvöld, kannski, þegar allt væri um garð gengið og Eva systir hennar sofnuð í litla sameiginlega herberginu þeirra, þá gæti Audrey máski leyft sér að þrýsta höfðinu niður í koddann og gráta yfir ör- væntingu sinni. Þangað til varð hún að stilla sig um að hugleiða það, hvernig allt hefði getað verið öðru vísi, ef —! Audrey flýtti sér að fara úr kápunni, taka af sér hattinn og smeygja greiðu gegnum hárið. Síðan fór hún í slopp og gekk fram í verzlunina. Straumur lita og ilms flæddi á móti henni. Hvarvetna um gólfið stóðu blóm í flekkjum. tVonan sem stjórnaði verzlúninni leit upp og sagði: „Ungfrú Miller — flýtið yður inn tií H E I M IL I S B L A Ð IÐ 45

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.