Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1977, Qupperneq 28

Heimilisblaðið - 01.03.1977, Qupperneq 28
skal ég lána þér mínar bækur,“ sagði Stu- art. Þeir ræddu málið nánar. Og Stuart sló á þá strengi í sál Abrahams, sem ávallt voru næmastir: „Sérhver ungur maður á að setja sér háleitt mark; hann á að segja við sjálf- an sig, að hann skuli keppa að því að ná settu marki.“ Og hann bætti við: „Það er gulls ígildi að bjarga sér sjálfur.“ Springfield var fjörutíu kílómetra frá New Salem. En Abe gekk þangað sam- dæmurs og aftur til baka. Um kvöldið kom Green, vinur hans, til þess að vita hvernig honum liði eftir ferðina. „Hvað er þetta,“ hrópaði Green, „hef- urðu borið þessar f jóru þykkur bækur und- ir hendinni alla leið frá Springfield ?“ „Já, og lesið fjörutíu blaðsíður í einni þeirra á leiðinni,“ sagði Abe. „Setztu nið- ur og hlýddu mér yfir lexíuna.“ Green lagði nú spurningar fyrir Abe og komst að raun um, sér til mikillar undr- unar, að Abe kunni utanbókar þessar fjörutíu blaðsíður. Og nú las Abe lögfræði af miklu kappi. Tveim árum síðar tók hann próf í lög- fræði og settist að í Springfield. Það er skylda sérhvers málfærslumanns að hjálpa sérhverjum, sem til hans leitar, að ná rétti sínum eftir lögunum. Þessa hjálp ber honum að láta í té án tillits til eigin hagsmuna. Slæman málstað á hann ekki að verja og heldur ekki að reyna að fara í kringum lögin eða blekkja dómstól- ana, svo að saklaus sé dæmdur sekur. En það hefur verið sagt um marga mála- færslumenn, að þeir sköruðu eld að sinni köku og reittu alla inn að skyrtunni, sem til þeirra þyrftu að leita. Þið hafið kannski mörg heyrt söguna um unga maninnn, sem átti að verða kon- unglegur hlaupari. Það átti að taka úr honum miltað, svo hann gæti hlaupið án þess að mæðast. En lækninum mistókst áðgerðin, svo að hann tók úr honum sam- vizkuna í staðinn fyrir miltað. Og nú dugði ungi maðurinn til einskis nema að gerast málafærslumaður. En Abraham Lincoln vildi ekki vera samvizkulaus málafærslumaður. Dreng- lyndi, vinsemd, gjafmildi og réttsýni stjórnuðu gerðum hans. Eitt sinn kom til hans maður og bað hann um hjálp. „Já, segðu mér þá alla málavexti í sem fæstum orðum, en vertu sannorður,“ sagði Abraham. En þegar maðurinn hafði sagt sögu sína sagði Abe: „Ég get ekki hjálpað þér. Andstæðing- ur þinn hefur á réttu að standa, en þú á röngu.“ „Það kemur þér ekkert við,“ sagði mað- urinn. „Ég skal borga þér vel fyrir að reka mál mitt.“ „Hvað er þetta,“ sagði Abe hvassyrtur. „Ég ver aldrei þann málstað, sem ég álít vera rangan.“ „En þú getur þó valdið andstæðingi mínum útgjöldum og angurs. Hann á það sannarlega skilið og ég skal borga þér vel fyrirhöfnina, hvort sem ég tapa mál- inu eða vinn það.“ „Með brögðum og blekkingum gæti ég unnið málið fvrir þig og hirt mín laun, en ekkjan, sem stendur uppi fyrirvinnu- laus með smábörn, eins og þú hefur sagt mér, á meiri rétt á þessum peningum en þú. Ég tek þess vegna ekki að mér þetta mál.“ „Ekki með nokkru móti?“ spurði mað- urinn, sem hélt að Abe seldi samvizku sína fyrir gull. „Nei, jafnvel ekki þótt þú byðir mér aleigu þína,“ svaraði Abraham ákveðinn. Maðurinn reiddist. „Endurgjaldslaust vil ég gefa þér gott ráð,“ sagði Abe. „Þú virðist vera styrk- leika- og dughaðarmaður. Þú skalt því vinna þér þessa peninga inn á heiðarleg- an hátt.“ Framh. 64 HEIMILISBLAÐIÐ J

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.