Heimilisblaðið - 01.03.1977, Page 34
Kalli og Palli elta uppi sinn hvorn storkinn og
stökkva á bak þeim. Þannig fá þeir ókeypis flugferð.
„Höldum okkur fast, annars dettum við niður!“ hrópa
Kalli og Palli. „Já, haldið ykkur bara fast,“ hugsa
storkarnir, „við skulum samt sjá um að þið dettið!"
Og allt í einu snúa þeir sér við, svo að bakið snýr
niður og Kalli og Palli hrapa niður, en sem betur
fer falla þeir í litla tjörn .En hvað þeir eru framlágir
og votir þegar þeir þramma heim að húsinu sínu. Þeir
ætla aldrei framar að stelast á bak storkunum.
Kalli og Palli eiga bara eina appelsinu og þeir ríf-
ast um hvor þeirra eigi að borða hana. Að skipta
henni til helminga taka þeir ekki í mál. Pelíkaninn
býðst til að hjálpa þeim. „Sá ykkar, sem getur kast-
að henni beint í pokann minn, fær appelsínuna!"
Palli á að reyna fyrst og hefur heppnina með sér.
Appelsínan lendir beint upp í pelíkanann. „Þakka
ykkur fyrir,“ segir hann og flýgur brott. „Munið, að
næst þegar þið eigið appelsínu, skuluð þið skipta
henni á milli ykkar."