Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 21

Heimilisblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 21
ustu og hættulegustu leiðinni á flóttanum — hinu hallandi auða svæði. Tunglsljósið var miskunnarlaust í allri sinni birtu. Cur- zon var alveg viss um, að þau mundu sjást Sem skarpir skugga á tunglsbjörtum fleti hæðarinnar. En það var ekki um aðra leið að velja, og allt af dró saman með þeim °g ræningjunum — nýr hópur kom þjót- andi frá annarri hlið og tók á rás eftir þeim með tryllingslegum ópum. Skammbyssuhvellur heyrðist gegnum hávaðann, önnur skot heyrðust á eftir — andstyggilegir, nístandi hvellir. Það fór hrollur um Curzon, svo hann gnísti tönn- um. Hve hræðilegt, ef einhver kúlan skyldi nú hæfa Jay! Hann bað þess í hjarta sínu, að ef slíkt kæmi fyrir, þá yrði hún ekki sár og óvíg, heldur dæi þegar í stað. Hvað svo sem það kostaði, mátti hún ekki lenda í höndunum á þessu illþýði. Curzon hægði á hlaupunum, svo að hann dróst aftur úr ungu stúlkunum. Hermína hljóp fyi'st, því uæst Jay og síðastur Curzon — hvert á eftir öðru. Ef vel miðaðri kúlu væri hleypt af, mundi hún hæfa Curzon — og örlögin urðu svo að vera miskunnsöm ungu stúlk- unum. Ef til vill mundi Corcuera koma hingað svo fljótt, að hann gæti orðið frels- ai'i þeirra. Kúla þaut fast fram hjá eyra hans. Annar skothvellur kvað við, og Curzon sá þá stúlkuna, sem síðar hljóp, hrasa, þeg- ar þau nú voru komin hálfa leið upp brekk- una. „Jay!“ hrópaði hann, og kenndi hræðslu í röddinni. „Það er ekkert,“ svaraði hún og hélt afram hlaupunum. ,,Ég hrasaði bara. Það Var aðeins steinn.“ Vélahúsið var nú ekki nema spölkorn * burtu, og bak við það gnæfði hið skugga- ^ega trjávirki, sem umlukti eignina. Curzon sneri við höfðinu og leit um öxl. Ræningjarnir voru ískyggilega nálægt. Ef fh vill mundi þeim takast að komast til HEIMILISBLAÐIÐ trjávirkisins, áður en en ræningjarnir næðu þeim, en þeim mundi ekki vinnast tími til að klifra yfir. Honum varð allt í einu Ijóst, hve þetta var vonlaust, og nú heyrði hann auk þess gljrmjandi hófadyn í einum af trjágöngunum til hægri. Hann ályktaði af því, að einhverjir af ræningj- unum hefðu tekið hesta sína og riðu nú í boga í veginn fyrir þau, til þess að varna þeim frekari undankomu. í nokkrum skrefum náði Curzon ungu stúlkunum. ,Það er ekki til neins!“ sagði hann móð- ur. ,,Við komumst það ekki. Við verðum að leita okkur hælis. Þessa leið!“ Hann breytti um stefu og herti á ungu stúlkunum, til þess að koma þeim inn í skuggann af vélahúsinu, sem var skugga- legt og þunglamalegt efst í brekkunni. Þegar þau komust inn í skuggann undir veggnum, hætti skothríðin snögglega. Ræn- ingjarnir höfðu misst sjónar af þeim — fyrst um sinn. Frá athugunum sínum fyrr um kvöldið vissi Curzon hvar dyrnar voru. Hann fann þær og hratt þeim upp. „Farið inn!“ sagði hann hvíslandi við ungu stúlkurnar. Hann. beið meðan ungu stúlkurnar og Apache skutust inn. Síðan stóð hann kyrr eitt augablik og horfði aftur fyrir sig. Það úði og grúði af skuggalegum mönnum á auða svæðinu. Hann og ungu stúlkurnar voru komin í öruggan griðastað fyrst um sinn. Hann gekk inn, lokaði dyrunum og setti þunga slagbrandinn fyrir hurðina. Þau voru óhult — að minnsta kosti í nokkrar mínútur. Ræningjarnir mundu að vísu auðveldlega geta brotið upp dyrnar að vélahúsinu — hurðin var ekki neitt sér- staklega sterk, hingað og þangað á henni voru rifur, sem koma mátti fingri í gegn- um. Og jafnvel járnin, sem héldu slag- brandinum, voru tiltölulega veik. En það var mikið efamál, hvort menn Barboza 93

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.