Í uppnámi - 01.06.1901, Qupperneq 36

Í uppnámi - 01.06.1901, Qupperneq 36
66 45. J. Minckwitz. Svart. mánaðarlega skákt.ímarit, er heitir “Akademische Schachbliltter" og kemur það út í Berlín. —Tveggja nýlátinna taflmanna ber að geta. Dr. Adolf Bayersdokfer, einn hinn fremsti skákdæmahöfundur síðari tíma, lözt í Miinchen 21. febrúar siðastliðinn, nálega 59 ára gamall. Sem listadómari og fornfræðingur var hann og mjög kunnur. Til dæmis um það með hve mikilli elju og vand- virkni hann samdi dæmi sin, skal þess getið, að hann var í 5 ár að fást við að semja skákdæmi eitt uns hafði náð því takmarki, er hann hafði sett sér í byijun. Hinn er Johannes Minckwitz, sem nýlega réði sér bana 58 ára gamall. Hann var góður taflmaður og jafnframt góður skákdæma- höfundur, og margir munu þekkja skákrit hans. Hann var tvisvar ritstjóri “Deutsche Schachzeitung” (1865-76, 1879-86); af ritum hans mætti nefna “Das ABC des Schach- spiels," sem meðal annars hefur verið þýtt á sænsku af R. Sahlberg (1885), “Humor im Schachspiel” o. fl. Hann var ritstjóri margra skákdálka þar á meðal í “Illustrirte Zeitung” (Leipzig); yfir höfuð fékkst Minck- witz mikið við skákfélagamál og var heiðursfélagi 10 skákklúbba. Hann var geðveikur seinni hluta æfinnar. Mát í 4. leik. Vér setjum hér fjórleiksdæmi eptir hann, kallað “járnkrossinn,” og var það tileinkað hinum sigursæla þýzka her 1871. —I Gautaborg í Sviþjóð verður haldið norrænt skákþing dagana 4. til 16. ágúst næstkomandi. Hið nýstofnaða norræna skáksamband lætur halda það þing. Annað samskonar skákþing i sumar hafa Svissarar haldið í St. Gallen (8.—9. júní) og urðu hinir beztu keppinautar jafnir að lokum. Ennfremur heldur hið hollenzka skáksamband þing i Haarlem 22. júlí til I. ágúst og skal hinn bezti taflmaður þar hljóta yfirmeistaranafn auk stórra fjárverðlauna. —21. júni síðastlið. tefldi ungur, efnilegur taflmaður Dana, cand. jur. J. Gersing, 6 blindtöfl í einu í skákfélagi Kaupmannahafnar. Hann vann 3, tapaði 2 og 1 varð jafntefli. Þótti það vel gjört. —Dr. Emanúel Lasker, fremsti taflmaður í heimi, hefur nýlega haldið fyrirlestra um skák á ensku. Einn af þeim hefur verið birtur, að minnsta kosti i útdrætti. Hin praktisku atriði hans eru auðvitað mikilsvirði, en hið sögulega i honum ber vott um þekkingarskort. Lasker hefur núna heimsótt nokkra skákklúbba í Bandaríkjunum. Hann býr sem stendur á Englandi.

x

Í uppnámi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Í uppnámi
https://timarit.is/publication/436

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.