Heimir - 01.12.1909, Blaðsíða 16

Heimir - 01.12.1909, Blaðsíða 16
88 HEIMIR aö breyta, ekki aðeins hinu verulega starfi kyrknanna, heldur einnig öllum skilningi viövíkjandi ætlunarverki þeirra. Enn- freinur hafiö þér heyrt hversu þýöingarmiklar ályktanjr nútíðar heimspekinnar trúarbrögöunum viövíkjandi eru. Athygli yöar hefir veriö leitt að nýjustu skoðunum uin viöhald afisins í al- heirninum, aö hinum merkilega krafti hins nýfundna radfums, og aö hinum síöustu útskýringum á ódeili, efniseining, efni sundur- leystu meö rafmagni og rafmagnsfrumögnurn—hugtökum mann- legrar skynsemi, sem eiga nrikiö skylt við nútíðarhugmyndir um efni og sál. Ahrif vísindalegrar þekkingar í sainbandi \ iö Nýja- testainentiö á almenningstrúna hefir einnig vakiö eftirtekt yöar, og, aö síöustu, hafiö þér heyrt útlistun trúarbragöalegs ástajids og siöa í Bandaríkjunum, þar sem gert var ráð fyrir nánu sarn- bandi á milli framfarar menningarinnar og samtíöa einkenna trúarbragöanna, og nytsenri þeirra—sérstaklega kristindómsins —fyrir menningarframförina, meö stuöningi einstaklings frelsis- ins, andlegrar menningar og félagslegs sanrstarfs, var sögulega útskýrð. Þetta yfirgripsmikla yfirlit hlýtur að hafa skiliö eftir hjá yöur þá hugsun aö trúarbrögöin eru ekki eitthvaö, sein stendur í staö, heldur nokkuö, sem er breytingum liáð. Þaö er þess vegna í alla staöi eölilegt og viö því aö búast, aö skilningur upplýsts fólks á trúarbrögðunum breytist öld frá öld. Rann- sóknir nútímans í samanburöar trúfræði og sögu trúbragðanna sanna að svo hefir verið á liönum öldum. Nítjánda öldin skarar langt fram úr öllum fyrri öldum í því aö auka þekkingu og útbreiöa anda vísindalegrar rannsóknar og þrá eftir sann- leiks leit. Af því stafa breytingarnar í trúarskoðunuin, venjum og sambandi kyrkjunnar viö samfélagið í heild sinni, er voru miklu dýpri og víötækari á þeirri öld en nokkru sinni fyr í sögu mannkynsins; og tilraur.ir þær, sem geröar voru til aö fram- kvæma í breytni manna kenningar hinna mestu trúarleiötoga voru þýöingarmeiri og tíðari en nokkru sinni áður. Trú fjölda fólks má þess vegna nú á tuttugustu öld, án þess að of djúpt sé tekið í árinni, kallast “ný trú”. Ekki þannig, aö einhver.ein kenning eða siður sé í raun og veru nýr, heldur þannig, aö

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.