Heimir - 01.04.1910, Blaðsíða 3

Heimir - 01.04.1910, Blaðsíða 3
HEIMIR 171 lærdóm Gyöinga á þeim tímum. í ööru lagi var hann nokkuð knnnugur grískri mentun og óbeinlínis undir áhrifum grískra hugmynda; hvorttveggja þetta kemur í ljós í skoöunum hans. Trúarskoðanir Páls eftir aö hann varö kristinn eru rnarg- brotnar og að ýmsu leiti fremur óskýrar. Guöshugmynd hans er aöallega hin sama og lnm var alment hjá Gyðingum. En samkvæmt hans skoðun er Jesús ekki hinn þjóðlegi Messías, sein hann var í augum lærisveina sinna; hann er vera, sem stendur mitt á milli guös og manna, guömaöur. Þessi guö- maður hefir altaf verið til frá upphafi veraldar, hann er hin fyrsta og liæðsta sköpuð vera, maöurinn er skapaður eftir honum. Þessi vera birtist í Jesú frá Nazaret, er líflátin og rís upp, til aö hverfa aftur til sinna fyiri bústaða. Með því að deyja hefir hann frelsað mennina frá dauöa, sem var hlutskifti þeirra, vegna þess, aö þeir ekki gátu lifað samkvæmt lögmálinu. Eins og hann reis upp eiga þeir einnig að rísa upp og verða að verum líkum honum. Trú, það er traust á að hinn dáni og upprisni jesús hafi afrekað þetta, er það sem gerir manninum mögulegt aö verða sama eölis og hann. Þannig í íáum orðum er guöfræði Páls. Það er auðsætt að Kristur hans er allt annaö en maðurinn Jesúsfrá Nazaret, sem vér lesum um í samstæðu guðspjöllunum. En livert á Krists- hugmynd hans rætur sínar að rekja ? Til grísku heiinspekinnar. Plato haföi kent aö hver hlutur í hinum efnislega heimi ætti sína fyrirmynd í öörum óskynjanlegum heimi. Þessar fyrir- myndir áleit hann að væru sí varanlegar og aö hinn skynjanlegi heimur væri gerður eftir þeim. Fyrirmyndirnar eru andlegs eðlis, þær eru hugmyndir, og efniö, sem er hið lægsta í tilver- unni, er þeim andstætt. Kristur Páls er í raun og veru platónsk mann-hugmynd. Iiann er annars eðlis en hinn líkainlegi maöur, en í hinum líkamlega manni er hinn innri eða andlegi maður, sem er sama eðlis og h'ann. Iiinn innri og hinn ytri maöur, andinn og holdið eru hvort öðru andstætt, og fullkomnunin, sem menn eiga að keppa eftir, er eyðilegging alls þess sem er eöli hins ytra manns. I þessum skoðunuin Páls er hægt að finna grundvöll þann,

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.