Iðunn - 01.02.1889, Page 79
Camillo Cavour.
73
að Cavour lagði fyrir þingið frumvarp um afnám
300 klaustra, þeirra, er klausturbræður ekki hj úkr-
uðu sjúkum, ekki fengist við fræðslu ungmenna,
nje störfuðu að nokkru því, er til gagns mætti
verða. það er svo sem sjálfsagt, að klerkarnir
urðu hamslausir. þá bar svo við, að á einum og
sama mánuði andaðist móðir konungs, kona lians
og bróðir. Úr þessu varö klerkunum matur ; þeir
vissu, hvernig á þessum mannalátum stóð ; sögðu
þeir, að reiðieldur guðs væri yfir konung kominn,
fyrir það að hann fyllti flokk kirkjuránsmanna, og
þeirra, er helga hluti hefðu að háði. Hinn sorg-
mæddi konungur var utan við sig og á báðum átt-
um. Cavour vildi ekki taka frumvarpið aptur, og
bað um lausn.
I 6 daga var ríkið án ráðaneytis ; þá áttaði
konungur sig, og kvaddi Cavour aptur til stjórnar.
Nú varð frumvarpinu framgengt. þegar konungur
ritaði nafn sitt undir lög þessi, varð honum að orði :
»|>á vil jeg heldur fara til Ameríku en hleypa mjer
aptur í annað eins og þetta».
Her Sardiníumanna gafst ekki færi á aðvinna
nein afreksverk á Krím ; en í smáorustu einni
sýndu þeir mikinn vaskleik. Cavour þótti sem
Sardiningar hefðu þegar sýnt Norðurálfuþjóðunum
það, að Italir kynnu með frjálsa stjórn að fara; en
það sem honum nú þótti mest undir komið, var,
að sýna mönnum fram á, að þeir gæti á vígvelli
staðið jafnfætis hinum beztu hermönnum í heimi.
Afleiðingarnar urðu í þessu tilliti eins og hann
hafði gert sjer vonir um. Hin litla hugprúða þjóð
hafði áunnið sjer hylli Frakka, og þá ekki síður