Kirkjuritið - 01.04.1936, Blaðsíða 15
Kirkjuritið. Kristur og kommúnísminn. 149
Þegar Jesús kom fram, kallaði hann aðeins starfs-
menn til þess að vinna fyrir rikið nýja. Það átti að verða
riki starfandi rnanna. Hann sá Matteus „sitja í tollbúð-
inni“ við innheimtu og kallaði hann til þess að gefa í
slað þess að taka. A einni af ferðum sínum tefldi hann
hungrinu fram á móti lögmálinu. Lærisveinar hans
tíndu kornöx á akri og' átu, af því að þeir voru svangir.
Það var á hvíldardegi og þvi talið bannað samkvæml
lögmálinu. En Jesús mat það meira, að þeir seddu hung-
ur sinn. Þetta mundi tákna það á máli vorra tíma, að
auði og skrauti kirkna skyldi varið til þess að seðja
hungraða, ef það yrði ekki gjört með öðrum hætti. Að
dómi Krists var það heilagt hlutverk, að bæta úr þörf-
um manna. Þegar mannfjöldinn hafði þyrpst um hann
á óbygðum stað og lærisveinarnir vildu senda fólkið
heim, þá sagði liann: „Ekki þurfa þeir að fara burt, gefið
þér þeim að ela“. Hann vildi ekki láta þá fara frá sér
fastandi. Flest trúfélög liefðu gjört það. Þau hefðu sagl:
„Vér höfum gefið yður andlega fæðu, um þá jarðnesku
varðar ekki neitt“. Jesús lét lærisveina sína gefa þeim
að eta. Og hann gjörði meira. Hann setti á stofn bræðra-
lag með öllum.
Hann sagði söguna um miskunnsama Samverjann.
Prestur kom frá musterisþjónustunni í Jerúsalem og
mátti ekki vera að því að hjálpa ósjálfbjarga manni,
sem lá við veginn. Svo fór einnig hinum musterisþjón-
inum, Levítanum. Þeir áttu svo annríkt við að þjóna
Ouði, að þeir liöfðu enga stund aflögu til að þjóna hörn-
um hans. En Samverjinn, útlendingurinn, gjörði það,
sem hvorugur hinna varð til, hann gekk til hans. Hinir
báðir sáu hann og gengu fram hjá. Samverjinn hætti úr
þörf hans. Kristnir menn verða að koma alveg að og
sjá rangsleitnina, sem rikir í skiftingu arðs og auðs, og
þeim mun fallast mjög um liana. Kirkjan má ekki að
eins horfa á álengdar. Hún verður að breyta eins og
Esekíel þegar hann fór að tala til herleidda lýðsins