Kirkjuritið - 01.04.1936, Blaðsíða 24
158
Stanley Jones:
KirkjuritiS.
Nei, þar ræður fleira en járnhari lögmál. Straumur
læknandi og fyrirgefandi náðar. Líkaminn allur hraðar
sér að lækna hrotið bein, landvarnarlið hans fylkir sér
um sollið sár að mýkja það og græða. Margir láta líf
sitt til þess að hinir geti lifað. Skriður falla niður hlíðar,
en náttúran breiðir hlóm yfir sárin. Hún var langt á
undan oss með sitt Rauðakross-félag. En í æðstum skiln-
ingi er kross Krists tákn fyrirgefandi og endurleysandi
kærleika Guðs öllum til handa, sem eiga bágt andlega
og siðferðilega. Kærleiki hans ber með oss og fyrir oss
þyngstu gjöld synda vorra. Máttur hans megnar að
brejda oss til hins betra.
Kommúnistar trúa því einnig, að maðurinn breytist.
Marx segir, að hann hafi áhrif á umhverfið og breyti þvi,
og þannig hreyti hann sjálfum sér. Mikið rétt. Þess
vegna viljum vér, að maðurinn eignist æðsta umhverfi,
sem hugsast getur, guðsríki. Um leið og hann kappkostar
að láta lög þess verða að veruleika í lifi sinu og annara,
þá breytist hann, tekur að likjast því — eða nánar og
og skýrar sagt — líkjast stofnanda þess, Jesú Kristi. En
kraftinn til þess fáum vér aðeins fyrir innra frelsið þjáð-
um til handa, fyrirgefninguna.
Kommúnisminn tekur ekkert tillit til þessarar nauð-
synjar. Hann vill lyfta ytri byrðum af herðum manna,
ern snertir ekki við hinum innri. Þannig ætlar hann sér
að lækna heiminn á auðveldari hátt en unt er. Hann
segir, að ekkert eilífðarlögmál sé til og þar af leiðandi
séu engin boð þess brotin né nein sálarneyð af þeim or-
sökum. Eina siðalögmálið er siðalögmál stéttastríðsins,
alræði öreiganna og stofnun kommúnistarikisins. Marx
lýsir þessu ríki og siðalögmáli þess. Hann kemur í Guðs
stað svo sem höfundur siðalögmálsins. Enginn Guð er
til og Marx er spámaður hans. Ný þrenning er að vaxa
upp á Rússlandi. Heljarstór mynd af Marx blasir við inn-
ganginn á skóla einum. Á næstu hæð beint fjTÍr ofan er
önnur eins af Lenin og hæst sú þriðja af Stalin. Marx