Kirkjuritið - 01.03.1939, Síða 16
110
Einar Sturlaugsson:
Marz.
vegna er oss öllum holt að sjá það, er aí'laga t'er hjá sjálí'-
um oss, annaðhvort við samanburð annars, sem betra er,
eða að vér sjáum oss sjálf frá annari hlið en hinni venju-
legu. Vér þurfum að sjá sjálfa oss og aðra í nýju ljósi.
Engar stundir eru betur fallnar til að rifja upp hin
stærstu augnablik liðinna ára og alda, en þeir minninga-
dagar, er sagan geymir helgum rúnum ritaða á spjöldum
sinum. Fyrir |jví skulum vér iiugleiða, hvort vér eigum
ekki einhverja þá fyrirmynd að fara eftir, sem oss öllum
er nauðsynleg til andlegs þroska og lieilla.
Um föstuna mnum vér líklega allflest, frá því er vér
vorum börn, liafa heyrt lesna kal'la úr píningarsögu frels-
arans. Vér höfum fylgst með ofsóknunum, séð hvernig
hann var hrakinn og smáður, sendur frá einum til annars
og yfirheyrður. Framkoma lians var æ hin sama. Elska,
Jiógværð og mildi einkennir hann. Hann andmælir ekki á-
sökunum, en fyrirgefur lastmæli og heiftarráð. Hann veit,
að kvalafullur dauði biður lians innan skamms. Og bvað
hefir hann aðhafst, er verðskuldi slíka meðferð, sem hann
fær? Hann hefir læknað sjúka, liuggað hrelda, lífgað dauða
og boðað fátækum fögnuð og frið. Hann hefir sýnt mönn-
unum, Iivernig jieir eigi að lifa, lii þess að verða hamingju-
samir. Alstaðar og æfinlega hefir liann auðsýnt þeim
elsku og hjálpsemi, er á einn eða annan Iiátt leið illa.
Guðspjöilin fjögur, sem eru aðalheimildirnar um Jes-
úm, segja öll frá hinu sama, er gerðisl kvöldið fyrir dag-
inn mikla, er liann gekk undir krossi sínum út til Golgata
og leið sáran dauða. Hann sat til borðs með vinum sínum-
Hann vissi, að það var síðasta skil'lið, sem hann, holdi
klæddur, blessaði þeim brauðið og vínið er þeir neyttu;
og vegna þess að hann þekti manneðlið og mátt minn-
inganna, bauð liann lærisveinunum að viðhalda þessum
sið, — að koma saman lil minningar um sig. — En Jó-
hannes guðspjallamaður segir frá einu atriði, er þeim fói’
á milli þetta kvöld, Kristi og lærisveinum lians, e11
hinir geta ekki um. Að máltíðinni lokinni hellir Jesus