Kirkjuritið - 01.03.1939, Side 19

Kirkjuritið - 01.03.1939, Side 19
Kirkjuritið. Við lindina. 113 skilning á guðdóminum.. Hann finnur þá, af því að hann snýr sér til Guðs í einlægri hæn með hugarfari barnsins, að hann er sjálfur guðleg vera, en ofur ófullkomin og þarfnast æðri stuðnings. Hann finnur það líka, að allir inenn eru hræður, og að það er sérstök þæginda og sælu- •ilfinning samfara því að hugsa til annara með samúð °g fá að leggja sjálfur eitthvað af mörkum, þeim til lieilla. Vér skiljum guðdóminn aldrei allan hér i heimi. Aðeins það af honum, sem vér getum tileinkað oss hér á jörð, gert að voru eigin lífslögmáli. Og vér skynjum hann þá *neð hjartanu, með því að lifa Guði. En að vera eitt með honum er sælan mesta. begar vér göngum undir þyngstum krossi, eigum í sár- nstu raunum, skiljum vér þjónustu Krists og fórnardauða ketur en endranær. Og vér finnum oss máttugri til að ^era hyrðar lífsins, er vér virðum fvrir oss dæmi drottins v°rs. Um Jesúm Krist, sem hinn líðandi þjón og fórn- l)ndi frelsara, kvað Hallgrímur Pétursson á sinni tíð: „Við þennan brunninn þyrstur dvel ég, þar mun ég nýja krafta fá“. Herum vér ekki einnig hið sama? Hefir ekki mannkyn- 'Ó inimið staðar við kross Jesú á vegferð sinni á liðnum okliun ? Hefur ekki minningin um Krist, eftirdæmið sem liann gaf oss, verið í senn svalandi brunnur og sú lygna, kera lind, sem kynslóðunum hefir speglast í alt hið feg- Ul'sta og bezta, sem heimurinn nú þekkir? Hvar liöfum Ver litið meiri dýi’ð en i lífi Krists? Hjá hverjum fengið Jegri fyrirheit en honum? Hvar mætt fyllri samúð, skiln- lngi og elsku? Er það ekki frá honum alt, sem vér eigum °g þekkjum fegurst og bezt? Líttu á þína eigin mynd i þndinni helgu, minningunni um drottin þinn. Verður hún ekki harla ófullkomin horin saman við mynd hins heilaga? ^g þó. Fær hún ekki þann ljóma, sem hún her, frá ásýnd ói'ottins Jesú Krists? Finnur ]xú ekki ótal margt í fari V1ists, sem þú átt eftir að tileinka þér, en þig langar til öðlast? Hann bendir oss á, hvað oss vantar. Hann sýnir

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.