Kirkjuritið - 01.03.1939, Qupperneq 25

Kirkjuritið - 01.03.1939, Qupperneq 25
KirkjuritiÖ. Golgata og gröf Krists. 119 einn af lömpunum, tók baðmull, dýfði henni létt niður í olíuna og gjörði með henni krossmark á andlit bóndans. Gamli maðurinn lét fallast á knén, laut aftur að gröfinni og vildi ekki við hana ski.lja, hann fór hrjúfum höndunum um marm- nrann, gagntekinn af trú og tilbeiðslu. Það var eins og hann stryki um lokka á barnshöfði.“ Fæstir lesendur Kirkjuritsins munu nokkuru sinni eiga þess kost, að koma með samskonar hætti til þessara helgistöðva og lifa þar í anda krossdauða Krists og upprisu. En sú er bótin, að unt er fyrir því að eiga í hjartanu bæði Golgata og gröf Krists, cða finna dásemdarkraft dauða hans og upprisu ummynda alt and- legt líf sitt, og um það er vissulega mest vert af öllu. KRISTNIBOÐSSTARFIÐ. Árangur af kristniboðsstarfinu meðal heiðingja hefir farið ■njög í vöxt síðustu árin. Voru kristnir menn í heiðingjalöndun- l|num alls 8342373 árið 1925, en 13036354 árið 1935. Á Suður-Indlandi voru fyrir nokkurum árum aðeins örfáir kristnir menn. Nú eru þeir um 30000, og var 8000 veittur undir- búningur undir skírn árið sem leið. í Kína eykst kristninni mjög þróttur nú i liörmungum striðsins, og má benda á margt fagurl þar og eftirbreytnisvert. I kristnum kirkjum og á kristnum heimilum Kinverja er jafnvel beðið fyrir Japan, bœði landi og þjóð. Og þar sem neyðin er stærst, cru kristnir menn reiðubúnir til hjálpar. Þykja Kínvcrj- 1,111 þau meðmæli nægja, að menn séu kristnir, þá treysta þeir ]>eini ótakmarkað og skilyrðislaust.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.