Kirkjuritið - 01.03.1939, Qupperneq 28
122
Augustin Lodewyckx:
Marz.
1 1 r *Wwti
■ r
Kristniboðsstöðin í Hermannsburg.
Goszners bræður*) i Berlín héldu nýlega aldarafmæli þess,
að þeir sendu 13 trúboða saman lil Queenslands, og komu þeir
þar upp trúboðsstöð meðal innborinna manna. Leichhardt, land-
könnuðurinn frægi, sem dvaldi lijá þeim um liríð 1843, lýsir svo
dvöl sinni: „Hér í Moretonfirði á ég heima lijá þýzka trúboðinu,
inndælu og ágætu fólki, sem liefir lagt mikið á sig til þess að
reyna að kristna blökkumennina, en hefir því miður orðið lítið
ágengt. Allir eru trúboðarnir kvæntir menn, og eru þarna alls
sjö fjölskyldur og börnin 22, ágætlega uppalin. Ég uni mér vel
bjá þeim, því að of sjaldan er fyrir að hitta í þessari nýlendu
siðgóða, dygðuga menn“. Og nokkurum mánuðum síðar, í ágúst
1843, skrifar liann: ,,í Moretonfirði sá ég þýzku trúboðana, og
eru nokkurir þeirra frá Berlín og Poimnern. Mér fanst nærri því
ég vera kominn heim, þegar ég var við þýzku sunnudagsguðs-
þjónustuna lijá þeim“.
Ríkisstyrkurinn, sem fékst í upphafi til trúboðsins, féll brátt
niður, og urðu því bræðurnir sjálfir að sjá um afkomu sína.
°)J. E. Goszner prestur í Berlín stofnaði þar trúboðsfélag ár-
ið 183(i.