Kirkjuritið - 01.03.1939, Blaðsíða 37

Kirkjuritið - 01.03.1939, Blaðsíða 37
Kirkjuritið. íslenzkar bækur. 131 laug. Saga einyrkjans, Bjarnar á Reyðarfelli, er, eins og skáldið segir í stórbrotnasta og t'ignarlegasta kvæðinu í upphafi bókar- i nnar, „imynd þeirrar þjóðar, sem þúsund ára rannaferil tróð og dauðaplágum varðist gadds og glóðar, en gleymdi altaf lífs síns dýrsta sjóð.“ Mun það sannast, að hún sætli margan mann betur en áður við þrekraunir og þröngvan hag, og gat skáldið ekki gefið þjóð sinni betri jólagjöf í skammdegismyrkrunum. Það er aðallega tvent, sem ritstj. Kirkjuritsins þykir sérstök ástæða til að benda á. Annað er innilegur samhugur skáldsins með öllu, er það lýsir. • il dáemis um hann má nefna kvæðið „Þorranótt". Það er djúpt sptt í heima móðurástarinnar og umhyggjunnar, og lætur þó svo 'itið yfir sér, að mörgum mun dyljast við fyrsta lestur, hve vel það er ort. En svo er þar sagt frá móðurhugsunum og tilfinning- ll|u, að óvíða mun betur í islenzkum bókmentum. Myndin, sem 'Þ'egin er upp af móðurinni og barninu við barm hennar i heiðar- þaenmn, meðan hríðin lemur þekjuna, er unaðsfögur og sönn og þrungin friði. Alla leið þaðan nær samhugur skáidsins ti) silung- anna undir vetrarísnum. „Þeir elska sumarljósið og lyfta sér i vök. Þeir leika svörtum uggum og vatn í tálknin draga. Þeim Ieiðist vetrarisinn, hin köldu þykku þök, og þarna niðri í hyljum er dimman mest til baga. Þeir horfa upp í bjarmann sem börn við glugga sinn, <>g björtum morgni fagna og nýja veröld eygja. I grandalausú móki þeir ganga á öngulinn. A grárri klaka hellu þeir brjótast um og deyja." s( 'litt er trúhneigð skáldsins, lotning og ást á kristindóminum, 'eugurinn, sem heldur uppi lifi þess og Ijóðum. Hennar gætir

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.