Kirkjuritið - 01.03.1939, Qupperneq 39

Kirkjuritið - 01.03.1939, Qupperneq 39
Kirkjuritið. Innlendar fréttir. 133 sem vinna þjóðinni gagn með skáldskap sínum. Ætti hún að roeta það við liann og þakka svo sem vert væri. Biblíusögur. Gamla testamentið. Þorsteinn Kristjánsson tók saman. Ríkisútgáfa skólabóka. Ef til vill er of snemt að ritdæma bækling þenna, þvi að mér hefir skilist, að útgúfunefndin hafi haft upplag hans lítið og sé fús til að breyta honum og bæta, ef hún fái rökstuddar óskir um það. En talsverðra endurbóta á honum er þörf, þrátt fyrir lofsverðan dugnað og áhuga séra Þorsteins Kristjánssonar á ]3ví að skrifa nú aftur nýja kenslubók í kristnum fræðum. Ivver hans hafði ýmsa góða kosti og bar ljóst vitni um eljan hans og vandvirkni. En honum hefir tekist nokkuru lakar með þessar bibtiusögur, enda sennilega haft nauman tíma til að vinna verkið. Efni þarf að velja sumstaðar á annan veg og betur við harna hæfi og leiðrétla fáeinar skekkjur. Ytri frágangur allur frá hendi rikisútgáfunnar er í fátækleg- asta lagi, nema uppdráttur fylgir af Gyðingalandi á tímum Gamla testamentisins. Væri hann til mikils hagræðis, ef nöfn væru alstaðar sett rétt á hann; en svo er ekki. Það ætti að vera einsætt, að biskup og kirkjuráð fjölluðu um næstu biblíusögur, og mætti þá jafnframt leita tillagna og að- stoðar séra Þorsteins Kristjánssonar og annara góðra manna. Á. G. Innlendar fréttir. Skýrsla kirkjuráðsins. Kirkjuráð íslands byrjaði aðalfund sinn, fyrir yfirstandandi 'h’, mánudaginn 6. marz kl. 4 e. h. Mættir voru, auk hins nýja forseta þess, Sigurgeirs Sigurðssonar biskups, liinir aðrir kirkju- 1 áðsmenn, þeir prófastur Þorsteinn Briem, varaforseti kirkju- >’áðs prófessor Ásmundur Guðmundsson, sýslumaður Gísli Sveins- son og kaupmaður Ólafur Björnsson. Þegar forseti hafði sett fundinn og boðið kirkjuráðsmenn velkomna, sneri hann máli sínu tit fyrverandi forseta, dr. Jóns biskups Helgasonar, sem viðstaddur var við fundarsetninguna, °g vottaði honum þakklæti kirkjuráðsins fyrir mikilsvert og iarsælt starf hans sem forseta þess undanfarin 7 ár, og óskaði, að honum mætti sem lengst endast líf og starfsorka til blessunar- 1-ikrar starfsemi, kirkju- og kristnilífi þjóðar vorrar til eflingar. Eftir stutt fundarhlé voru fundarstörf hafin á ný. Er forseti

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.