Kirkjuritið - 01.07.1940, Síða 10

Kirkjuritið - 01.07.1940, Síða 10
250 Sigurgeir Sigurðsson: Júlí. slíkum stað að lialda i þessum heimi háreystinnar og vopna- gnýsins. Hinir mikilvægustu hlutir í þessum heimi ske venjulega ekki innan um fjöldann: Þar levsast ekki hin stóru viðfangsefni og vandamál. Það er á einverustundun- um, sem Ijós fellur inn í mannshugann og yfir skilning mannsins, þegar „gátur lífsins leiftra í önd“. Það er þar, sem maðurinn verður skygn og sér sýnir: „Gakk inn í herbergi þitt,“ sagði Kristur, „og er þú liefir lokað dyr- um þínum, þá hið föður þinn“. Mættu þeir, sem hér ganga inn i þessa kapellu, eiga hér stórar stundir og sjá sýnir sannleikans. Ég hygg, að þeir munu færri, sem í framtíð ganga fram hjá kapellunni í þessu húsi. Mér finst, að hún hafi eitthvað við sig, sem laðar og kallar á mann, að hér verði að finna innri hirtu og fegurð, sólskin andans, þeg- ar vísindin ef til vill verða of einliliða, of þur og köld, því að það er satt, sem skáldið kvað: „Sjálft hugvitið, þekkingin hjaðnar sem blekking, sé hjartað ei með, sem undir slær." En trúin á hinn eilífa sannleika er hjartsláttur vísind- anna. — Og þessi kapella skal vígð í trú á sannleikann, hinn eilífa sannleika, í trú á hann, sem er mannkvninu „vegurinn, sannleikurinn og lífið", í trú á Guð föður föður allra manna og allra þjóða. Ljósið í kapellunni, Ijós Guðs, logi svo alla daga, alla tíma og dreifi geislum sínum, lýsi öllum, sem hér í þessu húsi eiga að vinna að vísindum og ment og menning þjóð- ar vorrar. Ef unnið verður í trú á hann, þá mun það sann- ast á vorri þjóð, að „Vísindin efla alla dáð, orkuna stgrkja, viljann hvessa, vonina glæða, hugann hressa, farsældúm vefja lýð og láð‘‘.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.