Kirkjuritið - 01.07.1940, Blaðsíða 39

Kirkjuritið - 01.07.1940, Blaðsíða 39
Kirkjuritið. Prestastefnan. 279 Útvarpserindi önnur erindi. og með sérstökum lögttm söngmálastjóraembætti fyrir íslenzku kirkjuna." Tillagan var samþykt í einu hljóði. Heillaskevti Prestastefnan sendi heillaskeyti til Háskólans og Hins íslenzka prentarafélags, með þökk fyrir Guðbrandsbiblíu, er það gaf Hólakirkju. Rektor Háskólans, dr. Alexander Jóhannesson, svaraði með skeyti á þessa leið: „Þakka hjartanlega fyrir árnaðarkveðjur til Háskólans frá prestastefnunni. Vona, að hin nýja kapella verði athvarf hinnar árlegu prestastefnu og að þaðan megi Ijós kristinnar trúar skína til blessunar þjóð vorrÞ*. Tvö útvarpserindi voru flutt í sambandi við prestastefnuna, í Dómkirkjunni. Hið fyrra flutti séra Jón Auðuns frikirkjuprestur um „Kristin- dóminn i dag“, en séra Sigurbjörn Einarsson hið síðara, um nas- ismann og játningarkirkjuna á Þýzkalandi, nefndi hann það: „Vertu ekki hrædd, litla hjörð“ Þá fluttu þessir menn erindi á prestastefnunni, sem hér segir: Dr. Jón Helgason biskup: Um prestinn séra Tómas Sæmunds- son. Ásmundur Guðnnindsson próf.: Um Grafarkirkjuna. Séra Pétur T. Oddsson: Um kristindómsfræðslu barna, einkum í skólum. A laugardagskvöldið, að lokinni prestastefn- unni, dvöldust fundarmenn í góðum fagnaði og við ástúðlegar viðtökur á heimili biskupshjón- anna í Vesturhlíð. Ýmsar ræður voru fluttar og biskupshjónun- um árnað farsældar og blessunar. Á. G. Heima hjá biskupi. Aðalfundur Biblíufélagsins var haldinn 29. f. m. Á honum var samþykt i einu liljóði tillaga þess efnis, að félagið léti semja stutta nafnaskrá yfir Biblíuna og færi þess á leit við Brezka Biblíufélagið, að liún yrði prentuð ásamt uppdráttum af Landinu helga og efnisyfirliti yfir kapítula Výja testamentisins aftan við Bibliuna.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.