Kirkjuritið - 01.07.1940, Blaðsíða 20

Kirkjuritið - 01.07.1940, Blaðsíða 20
260 Ásmundur Guðmundsson: Júlí. mun liefjast með guðsþjónustu hér. Sú afstaða er mikils verð og l)oðar lieill. Öll menning, einnig' liáskólamenning, getur brugðist til beggja vona eftir því, livernig á er haltlið. Verði afskiftur siðgæðisþroskinn og trúarþroskinn, þá er voðinn vís. Ég man, hve ég fagnaði, þegar ég sá flugvél fyrsta sinni kljúfa loftið, sá þennan mikla draum mannsandans um aldarað- ir rætast. Hún hófst liærra og hærra og sveif áfram með feikna liraða. Þetta gat þá maðurinn, og ég var stoltur af mönnunum. Hversu mikið gott gat ekki einnig af hlotist? Hér var ráð fundið til þess að flvtja i skjótri svipan hjörg og líkn hungruðum og lijálparvana, færa sjúka í lækna hendur, frelsa úr sjávarliáska og öðrum nauðum, efla sam- starf í ótal myndum og samúð með eiustaklingum og þjóðum. Var þetta ekki undursamlegur vottur um þrosk- ann, sem mannkynið ætti fyrir höndum. Eu hvernig er nú komið? Nú óttast menn ekki annað meira en ófreskjur úr loftinu, sem spýja dauða og tortíming. Er þetta ekki skýr mynd af því, hvernig menningin getur orðið tveggja handa járn? Þótt öllu öðru fari fram hjá mönnunum, nema drengskapinn og mannkostina þrjóti, þá er skelf- ing ein fyrir dyrum. Það eru aumustu skifti „að græða allan lieiminn en tapa sál sinni“. Að sama skapi sem mað- urinn kann meira og veit og tækni lians vex, verður hann að Ijatna. Annars er háski búinn. „Sjálft hugvitið, þekkingin hjaðnar sem blekking, sé hjartað ei með, sem undir slær.“ Kapellan á að verða hjarta þessarar stofnunar. Hún getur orðið það með þeim hætti, að hér fari fram guðsþjónustur einslega og opinberlega mörgum til sálubóta, og hér húi ungir menn sig af heilum og hreinum og hrennandi luig undir það að flytja þjóðinni þann boðskap, sem beztur er, og síðast en ekki sízt með því, að alt það vísindastarf, sem unnið mun innan veggja þessa húss, megi verða gagn- sýrt af kærleiksanda kristindómsins. Þá munu þjóðinni hezt goldin launin fyrir það að koma húsinu upp. Þá mun það

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.