Kirkjuritið - 01.07.1940, Qupperneq 24
264
G. P.: Tileinkað kapellu Háskólans.
Júlí.
Kvað hann það kristinni kirkju avalt mikið gleðiefni, er menn
auðguðust að fjársjóðum þekkingarinnar.
í kirkjubæninni, að lokinni prédikun, bað presturinn fyrir
starfi Háskólans og kvaðst geðjast yfir þvi að nota heilaga stund
til þess að fela starf Háskólans honum, sem allir fjársjóðir spek-
innar og þekkingarinnar eru fólgnir í.
Benti hann á hinn sígikla sannleika, að ótti drottins er upp-
haf vizkunnar, og bað þess, að menn mættu ávalt sækja fróðleik
og sannleik í djúp ríkdóms og speki og þekkingar Guðs.
Mintist hann að lokum í hæn sinni kennara og nemenda Há-
skólans.
Tileinkað kapellu Háskólans.
I þessum herrans helgidóm
hefjum lofsöng með gleði róm
til Guðs, sem býr ó himnum hátl,
hann einn oss býður frið og sátl,
fyrir Jesú Krists fórnarblóð.
Fagni því gjörvöll heimsins þjóð.
Fögnum lífsspeki frelsarans,
framsettri’ í kærleiks orðum
hans.
Vísindum öllum ofar er
orð hans og verk — þeim lúta
bei;
þau eru andi, Ijós og líf,
í lífi’ og dauða skjól og hlíl'.
Þeir, sem hér stunda lærdóms
list,
lofi og prísi Jesúm Krist.
Hann einn á ráð, á himni og
jörð,
honum ber lof og þakkargjörð.
Annað nafn gefið ckkert er,
okkur sem dýrka’ og tigna ber.
Frelsarinn Jesús frelsar einn,
frelsað getur ei annar neinn.
Hugsanir vorar, verk og mál
verða án Jesú blekking, tál.
Hann einn fær sekt og syndir
máð,
sinni af miklu guðdómsnáð.
betta er Guði helgað hús,
hingað að koma verum fús;
auðmjúk hér beygjum andans
kné;
eiga hér Guðsbörn stormahlé.
Hér bíður faðmur frelsarans,
framréttur hverju barni hans.
Eg fel í þína föður hönd,
faðir himneski, líf og önd
allra, sem vilja þjóna þér,
þá bl'essa alla og nærri ver;
leið þá héðan, þá lífið dvín,
í ljóssins sali heim til þín.