Kirkjuritið - 01.07.1940, Page 33

Kirkjuritið - 01.07.1940, Page 33
Kirkjuritið. Prestastefnan. 273 prestur í Lándeyjarþingum og séra Ólafur Ólafsson á Kvenna- brekku. En þeir eru allir, eftir því sem ég bezt veit, á batavegi og tveir þeirra eru aftur teknir við störfum sínum. Merkasti viðburðurinn á sviði kirkjumálanna á síðastliðnu sýnódusári er án efa „Frumvarp um afhendingu Dómkirkjunnar í Reykjavík" og fjölgun prestakalla, sem varð að lögum á síðasta Alþingi. Eins og kunnugt er, hafði samskonar frumvarp og nú varð að lögum á undanförnum árum verið til meðferðar á þingi, en ekki náð fram að ganga. Er i þessu frumvarpi ákveðið, að af- Ný skipun kirkjumála Reykjavík. hending Dómkirkjunnar til safnaðarins fari fram og leggi ríkið kr. 300.000.00 til nýrra kirkna i Reykjavík á næstu 35 árum. Eldri frumvörp, sem í þessa átt fóru, gerðu ráð fyrir sömu upphæð, en að hún greiddist á 30 árum. Hefjast nú greiðslur þessar að 5 árum liðnum, og er fyrst og fremst gjört ráð fyrir, að kr. 100.000.00 gangi til nýrrar kirkju á Skólavörðuhæð. Fruinvarp þetta var samið af prestakallaskipunarnefnd, er skipuð var fyrir ári síðan. Eiga sæti í henni, auk mín, séra Friðrik Rafnar, vígslubiskup, og héraðsprófastur hvers prófasts- dæmis þar, sem um einhverjar breytingar kann að vera að ræða. Eg finn mér skylt, að þakka kirkjumálaráðherra, sem sam- kvæmt beiðni minni flutti þetta frumvarp, svo og öðrum þeim, er sæti eiga í ríkisstjórninni og Alþingismönnum fyrir skiln- 'ng á málinu. Önnur kirkju- ^ síðustu tveimur þingum hafa fjárveitingar til •nál á Alþingi kirkjunnar hækkað nokkuð bæði til kirkjuráðs og við launaviðbót þá, er yngri prestar hafa hlotið. Ennfremur hafa verið veittar til Akureyrarkirkju samtals kr. 40.000.00 við afhendingu hennar til safnaðarins. Enn voru teknar upp á fjárlög síðasta Alþingis kr. 3000.00, sem húsaleigustyrkur til biskups, og ganga ]>ær nú til greiðslu á húsnæði því, er rikisstjórnin hefir leigt sem biskupssetur, fyrst Uni sinn, við Öldugötu 14 (Vesturhlíð) hér í bænum. Nefndir skipað- Fins og kunnugt er, voru fyrir einu ári síðan ar af kirkju- lvær iu'fn(h'' skipaðar af kirkjumálaráðherra. ntálaráðherra ' ■ Prestakallaskipunarnefnd, sem ég áðan mintist á. Starfaði hún nálægt mánaðartima síðastliðinn vetur hér i Reykjavík, og býst hún við að reyna að 'hika störfum, áður en næsta reglulegt Alþingi keinur saman, °8 hafa nefndarmenn unnið með það fyrir augum, hvor á sín- um stað, og með því að kynna sér sem bezl hvor í sínu lagi að- stæður allar um nýja skipun sókna og prestakalla í prófastsdæm urn landsins.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.