Kirkjuritið - 01.07.1940, Síða 22

Kirkjuritið - 01.07.1940, Síða 22
Ásmundur Guðmundsson: 262 Júlí. in voru alsett smáreitum, hvert sem litið var yfir þessum dreifðu vinnuborðum, og á hverjum og einum voru Ietruð þrjú orð, alstaðar nákvæmlega eins, sörnu orðin. Deus illu- minatio mea. Deus illuminatio mea. Guð birta min. Yfir öllu þessu margþætta og fjölbreytta vísindalífi var Guð beðinn að vaka og lýsa því og gefa því vöxtinn. Svo skvldi einnig liér. Það er Guð sjálfur, sem laðar og leiðir inn á veginn til fullkomnunar alla þá, er vilja gefast honum á vald, og all starf þeirra. Hann gefur jafnt stofnunum sem einstakling- um þróttinn til fararinnar til fyrirheitna landsins, eins og lýst er í fögrum háskólaljóðum. Hann lætur guðfræðina verða bergvatnið svalandi og tæra, er sþrettur fram þar, sem lostið er helgum sprota. Hann veitir lögfræðinni anda og kraft hoðorða sinna frá Sínaí. Hann réttir læknisfræð- inni hlikandi eirorminn „undinn kringum spámannsstaf“, og þeir verða heilir, sem líta hann. Hann verpur ljósi sínu yfir leil heimspekinnar að sannleikanum, svo að hún vísi veg eins og eldstólpi. Hann setur samkvæmt fagnaðarer- indi Ivrists lífinu i mannheimi þau lög, að: „Hver, sem heitt í hjartans inni hyllir fagurt, satl og gott, hann á inst í öndu sinni eilífa lifsins pant og vott. Dvíni eiginelsku syndin, eflist hjá þér guðdómsmyndin kyn frá kyni, helg og há: Þá skal mikla auðnin enda, og um síðir skaltu lenda Jórdans björtu bökkum á. Hér skal því vera sameiginlegur helgistaður, þar sem hænir stíga upp til Guðs fyrir starfi Háskólans og þjóð- inni allri. Hér skal þakkað hvert farsældarverk, er Há- skólanum auðnast að vinna, og öllum þeim heðið blessun- ar, sem á einhvern hátt leggja góðu málefni lið og stvðja að sigri þess. Hér skal heðið um vernd Guðs og varðveizlu,

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.