Kirkjuritið - 01.07.1940, Side 36

Kirkjuritið - 01.07.1940, Side 36
276 Prestastefnan. Júlí. Þjóðgarðurinn. Vestfjarða, blaðið Bjarmi, sem áður. Útdráttur úr Odds-Nýja- Testamenti o. f 1. — Safnaðarblöðin á Norðfirði og á Djúpavogi bafa haldið göngu sinni áfram, og í Útskálaprestakalli mun sllk starfsemi hafin, eða um það leyti að hefjast. Er enginn vafi á því, að hér er á ferðinni góð nýbreytni, sem áhrif ætti að geta haft á safnaðarlíf og vakið áhuga til kirkjulegra og kristilegra starfa. Tvö af bréfum þeim, er ég ritaði yður, vildi ég minnast á. Eru það bréfin um slysatryggingar presta og æfiágrip og afstöðu presta í starfi þeirra. Mál það, er fyrra bréfið ræðir um, tel ég rétt, að prestar athugi vel, og við síðara bréfinu, sem allmargir eiga ósvarað enn, þætti mér vænt um að fá svör við lientugleika. Rétt þykir mér að minnast á, að nýr grafreit- ur hefir verið tekinn upp á Þingvöllum — „Þjóðgarðurinn", sem svo hefir verið nefndur og ætlast er til að verði hinzti livílustaður jarðneskra leifa þeirra manna, sem ísland á mest að þakka. Var grafreiturinn vígður af prófastinum í Árnessprófastsdæmi, er skáldið Einar Benediktsson var jarð- settur þar. Geri ég ráð fyrir, að lög verði sett í sambandi við grafreitinn á næsta Alþingi. Kapella Einn hinn siðasti kirkjulegi atburður, sem vak- háskólans Mhygli alþjóðar, er vígsla háskólakap- ellunnar. Um þessa fallegu kapellu, sem án efa er mikið listaverk, hefir verið rætt mikið, og þúsundir manna hafa komið lil þess að skoða liana, ásamt hinuni nýja veglega háskóla vorum. — Ég tel smíði kapellunnar mjög merkilega og mikilvæga framkvæmd frá kirkjulegu og kristilegu sjónarmiði. Hún mun bæta alla aðstöðu til starfa í guðfræðideildinni, en auk þess setur hún annan blæ á háskólahúsið og' starf háskólans alt. Einn af prófessorum háskólans sagði þannig við mig: „Hing- að í þessa kapellu mun ég oft koma í framtíðinni“. Guðfræði- prófessorunum og háskólarektor vil ég færa þakkir kirkjunnar fyrir góða framgöngu þeirra í byggingarmáli kapellunnar og húsameistara ríkisins, sem gerði kapelluna að listaverki. Óska ég guðfræðikennurum háskólans heilla og blessunar með nýju heimkynnin og hið fagra musteri þeirra. Mun ég að máli mínu loknu leggja til, að við sendum rektor háskólans heillaóskir vorar. Á 500 ára afmæli prentlistarinnar 24. þ. m. fóra um 200 prentarar „heim að Hólum“. Var guðs- þjónusta flutt i dómkirkjunni á Hólum af séra Friðriki J. Rafnar vigslubiskupi. Nokkurir norðlenzkir pestar munu hafa verið þar viðstaddir. Formaður Hins íslenzka prentara■■ Gjöf til Hólakirkju.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.