Kirkjuritið - 01.07.1940, Síða 19
Kirkjuritið.
Leiðin til fullkomnunar.
259
með honum. í krafti hans megnuðu veikir menn að halda
áfram starfi hans í þjónustn kærleikans. Veldi hófst,
gætt vaxtarmagni mustarskornsins, gegn öflum eyð-
ingarinnar og dauðans. Kristindómurinn varð til, „veg-
urinn“, eins og hann var nefndur í upphafi. Og þótt ýms-
um kunni að þykja lílið liafa orðið ágengt síðan, þenn-
an örstutta tíma á ferli mannkvnsins, þá er það víst, að alt,
sem her með réttu þelta nafn, hefir leitt til óendanlegrar
hlessunar, látið fjölda karla og kvenna í öllum löndum
og með öllum þjóðum verða sall jarðar og ljós heimsins
og vakið samtök og samstarf til líknar og lækningar á
óteljandi mannlífsmeinum. Kristindómurinn, Kristur er
eina vonin fyrir heiminn.
III.
Leiðin til fullkomnunar á að vera leið vorrar þjóðar og
æðstu mentastofnunar hennar, Háskólans. Engin orð geta
hlasað fegurri né tilkomumeiri fyrir sjónum hennar en
þessi: „Verið fullkomnir eins og faðir yðar á himnum er
fullkominn.“ Vér hljótum að játa með blygðun og harmi,
að oft höfum vér stefnl í aðra átt og' að i lífi voru hefir
mátt sjá smámynd af því, sem er að gerast í stríðinu með
hinum stærri þjóðum. En festum nú, ei' sverfur að sjálf-
stæði voru og þjóðarhag, þann ásetning að setja oss æðsta
markmiðið, sem unt er að keppa að. Ef vér gerum það
heilum lniga, sameinuð gegn öllum sundrungaröflum, og
leitumst af fremsta megni við að hfa eftir því, þá er það
víst, að vér eignumst innra frelsi og sjálfstæði, er mun
vara hvað sem ytri kjörunum kann að líða. „Sannleikurinn
mun gjöra yður frjálsa“, sannleikurinn, er Kristur hoðaði,
Kristur sjálfur. Trygging þjóðar gæfu er hvorki her né
hergögn né gullforði, lieldur andans stefna hennar til
þroska, lifs, fullkomnunar. Starfi Háskólans er ætlað að
vera mikilvægur þáttur í viðleitni þjóðarinnar í ])essa átt,
og því aðeins á það rétt á sér. Starfsmenn hans hafa kosið
það, að kapella væri í þessu húsi, og hátíð vor á morgun