Kirkjuritið - 01.07.1940, Qupperneq 25
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
Prestastefnan hófst fimtudaginn 27. júní kl. 1
Guðsþjónusta meg guðsþjónustu í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Biskup landsins las upp frá altari niðurlagið á
3. kap. Efesusbréfsins, séra Hermann Hjartarson prédikaði út frá
sálmi 8(5, 11, en eftir prédikun þjónuðu þeir fyrir altari séra Ólafur
Magnússon, prófastur og séra Marinó Kristinsson. í lok guðsþjón-
ustunnar voru prestarnir til altaris.
Fundarhöldin Fundirnir voru haldnir í einum af fyrirlestra-
sölum Háskólans og guðræknisstundir í kapellu
hans. Biskup bað bænar við fundarbyrjun og í fundarlok, en við
morgunguðsþjónustur þeir dr. Magnús Jónsson prófessor og séra
Þorgrímur Sigurðsson.
Fundarsókn Prestastefnuna sóttu, auk núverandi og fyrver-
andi biskups og vígslubiskups Skálholtsbiskups-
dæmis, jjrír guðfræðikennarar Háskólans, 48 þjónandi prestar
og prófastar, 8 fyrverandi prestar, 3 guðfræðikandídatar og 1
guðfræðinemi. Ennfremur kom á fundinn Gisli sýslumaður Sveins-
son, kirkjuráðsmaður.
Ávarp biskups og yfirlitsskýrsJa hans.*)
Kæru starfsbræður!
Ég býð yður alla velkomna til þessarar prestastefnu.
Þegar vér komum saman til fundar að þessu sinni, er sennilega
ömurlegra um að litast í veröldinni en dæmi eru til áður i menn-
ingarsögunni. Hinn heiftarlégasti hildarleikur, sem veraldarsag-
an þekkir, er háður í Evrópu og virðist breiðast út óðfluga, svo
nð ekki er unt að segja, hve víða styrjaldarógnirnar færa böl
°8 neyð yfir þjóðir heims.
I voru landi hefir heldur aldrei verið eins uinhorfs og nú.
Éand vort er í raun og veru hernumið. Þegar þér að þessu sinni
komið til Reykjavíkur, mætið þér fylkingu vopnaðra hermanna
ó strætum úti, hervirki eru sett um bæinn og víðsvegar í honum.
Alt er í mikilli óvissu. Erfiðleikarnir steðja að oss hvaðanæfa.
') Skýrslan er stytt um það, sem áður hefir verið skýrl frá
hér i ritinu.