Kirkjuritið - 01.07.1940, Side 29
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
269
Eyvindarhólum, en t'ór þangað ekki. Veitingu fyrir Arnarbæli
fékk hann 12. marz 1903, og þjónaði því prestakalli æ síðan.
Hefir hann þannig starfað sem prestur og prófastur í kirkju
vorri um 52 ára skeið, eða lengur en nokkur núlifandi prestur,
enda alveg óvenjuhár embættisaldur.
Séra Ólafur hefir ávalt verið í tölu hinna ágætustu starfs-
manna kirkjunnar, s'vakandi og síungur í starfi sinu og ævin-
lega komið fram kirkjunni til mikillar sæmdar. Hann hefir
slutt mjög að kirkjusöngnum, og veit ég, að það tíður aldrei
úr minni þeim, er nutu — hvern hátíðablæ hann veitti yfir
óteljandi kirkjulegar athafnir með söngstarfi sínu. Sjálfur
hefir hann frábæra söngrödd, og löngum hljómaði rödd hans
frá altarinu á hinum hátíðlegustu augnablikum innan kirkju
lands vors. Söngstarfsemi í landinu átti í honum einn hinn
bezta liðsmann og mátti segja, að sál hans væri ,,tónahaf“
eins og skáldið orðaði það. Séra Ólafur var einn af þeim prest-
um, sem tók hvað mestan þátt i sýnódus-störfum og lét sig þar
ekki vanta. Hann er enn með eld áhugans í brjósti, og má í raun
og veru ekki ellimörkin á honum greina, þrátt fyrir háan aldur.
Á síðastliðnu vori stjórnaði hann stórum söngflokki í Eyrar
bakka kirkju, er hann var kominn með úr prestakalli sínu, og
söng þar söngva til minningar um vin sinn og samherja, Sigfús
Einarsson tónskáld.
Siðastliðið vor hlýddi jeg á skörulegt erindi, er hann flutti
á fundi Prestafélagsdeildar Suðurlands, sem mér fellur ekki úr
niinni. Lýsti það vel hans sterka vilja, áhuga, æskuhug og drengi-
legri og frjálsmannlegri hugsun um kirkju- og kristindóm. Jeg
bakka nú i nafni íslenzku kirkjunnar hinum ágæta starfsmanni
og óska honum og ástvinum hans heilla og blessunar Guðs. Ég
'-eit, að starfsbræður hans allir eru fúsir til að taka undir þær
óskir. —
Prófastur, séra Ófeigur Vigfússon í Fellsmúla, sem verður 75
ára gamall nú á hinu nýbyrjaða fardagaári (3. júli), hefir fengið
undanþágu, og þjónar út þetta fardagaár, enda hefir hann fyrir
oingu síðan tekið sér aðstoðarprest og sjálfur enn hinn áhuga-
samasti og bezti liðsmaður.
\ýr prófastur Séra Ólafur Magnússon prófastur i Árnesspróf-
astsdæmi hafði sagt af sér prófastsstörfum frá
L jan. 1940 að telja. Fór fram prófastskosning í prófastsdæminu,
°g að henni lokinni, og samkvæmt henni var séra Gisli Skúla-
son skipaður prófastur í Árnesprófastsdæmi frá I. jan. s.l. að
^elja. Óska ég hinum nýja prófasti allra heilla i prófastsstörfum
hans.