Kirkjuritið - 01.01.1941, Qupperneq 12

Kirkjuritið - 01.01.1941, Qupperneq 12
6 Guðmundur Einarsson: Janúar. þessvegna drottinn á meðal eldanna; nafn drottins, ísraels Guðs, á eyjum hafsins". Hverir búa fremur á eyjum hafsins en vér Islendingar, hverir fremur meðal eldanna, þar eð e}rja vor er mesta eldeyja jarðarinnar? Svo að ef þessi spádómur á við nokkura þjóð á jörð, þá á hann sérstaklega við vora þjóð og vort land. Mitt í eyðingu þjóðanna á þá lofsöngurinn að hljóma á voru landi, og þegar allt er fallið í rústir á meginlandinu, á nafn drottins, Israels Guðs, að verða vegsamað „á eyjum hafsins“; já „frá yzta hluta jarðar- innar heyrðiun vér söngva, jafnvel lofsöngva til hins réttlála“, bælir spámaðurinn við. Sjáendur síðustu ára hafa skýrt þessa spádóma fyrir oss, og oss hefir verið sagt fyrirfram, að yfir íslend- ingum mundi verða vakað á sérstakan liátt í þessari styrjöld, vegna þess að okkur væri ætlað ákveðið verk að vinna í þeim heimi, sem rís upp aftur, þegar hörm- ungar nútímans eru um garð gengnar, — en þetta verlc er það: Að vegsama nafnið drottins, ísraels Guðs. — Að vér eigum að verða fyrirmynd fyrir framtíðarþjóðirnar, í rétllæti, — fyrst og fremst réttlæti, — því að það var lofsöngur til „hins réttláta“, sem spámaðurinn heyrði hljóma frá „eyjum hafsins“. En nú er ekkert réttlæti til án kærleika, það er því hið kærleiksfylta réttlæti, sem á að vera lögmál vor Is- lendinga í öllu voru lífi, og það svo greinilega, að það fari sem lofsöngur frá „eyjum hafsins“ út yfir jörðina og verði að fyrirmynd fyrir þjóðirnar og búi þær undir konni friðarríkisins, sem vér yæntum að komi innan skamms. Sé það rétt, að yfir oss sé vakað, og það svo greini- l^ga, að naumast verði um deilt, þá er það víst líka aug- Ijóst mál, að oss er ætlað eitthvert ákveðið verk að vinna fyrir þenna heim, eða þann, sem risa á upp að nútiðar- hörmungunum loknum; og þá getur það naumast verið anuað en það, að færa þjóðunum hoðskap um gæzku

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.